Fjarnám í kynjafræði
Haustið 2007 hófst fjarnám í kynjafræði. Kynjafræði hafði áður verið kennd í fjarnámi á árunum 2001 til 2005 innan BA-náms í nútímafræði sem var samvinna Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Nú eru flest skyldunámskeið kynjafræðinnar kennd í staðbundnu námi og fjarnámi og möguleiki að taka meginhluta námsins í fjarnámi.
Diplóma í hagnýtri jafnréttisfræði er í sumum tilvikum hægt að taka alveg í fjarnámi, ef valnámskeið nemenda eru einnig fjarkennd.
Kynjafræði er fræðigrein margbreytileikans, hún miðar að auknu lýðræði og leitast við að auka hlutdeild og þátttöku allra í samfélaginu óháð kynhneigð, þjóðernisuppruna, aldri, fötlun, búsetu og öðrum félagslegum áhrifaþáttum. Því er mjög nærtækt og eðlilegt að boðið sé upp á kynjafræði í fjarnámi þannig að fólk á landsbyggðinni eigi möguleika á að stunda námið, en einnig fólk sem af öðrum ástæðum getur ekki sótt skipulagðar kennslustundir. Formið er einfalt og hefur vissulega sínar takmarkanir því fjarnám er aldrei sambærilegt við staðnám. En fjarnámið mælist mjög vel fyrir og nemendum fjölgar hægt og bítandi.
Fjarnámskeið í kynjafræði á grunn- og framhaldsstigi fyrir háskólaárið 2009-2010 eru talin upp hér fyrir neðan:
Umsjón með fjarnáminu hefur Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði. Framkvæmdin er þannig kennslan er tekin upp og eru upptökurnar aðgengilegar nemendum á sérstökum námskeiðsvef. Þá eru fjarfundir haldnir með fjarnemum nokkrum sinnum yfir misserið.
Kennarar setja kennsluáætlun, leslista, glærur og annað efni inn á námskeiðsvefinn. Nemendur geta hlustað á fyrirlestrana og stundað námið þegar þeim hentar. Nemendum er velkomið að mæta í tíma þegar þeir eru á höfuðborgarsvæðinu. Próf eru tekin í símenntunarmiðstöðvum í heimabyggð nemenda.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Skiladagar lokaritgerða vegna brautskráningar í júní 2012:
BA-ritgerðir: 27. apríl 2012
MA-/MPA-ritgerðir: 27. apríl 2012






