Um deildina
Lagaskóli tók til starfa á Íslandi 1. október 1908 eftir rúmlega hálfrar aldar baráttu Íslendinga fyrir því að lagakennsla flyttist frá Danmörku til Íslands. Hann starfaði í 3 ár, kennarar voru 3 og nemendur urðu samtals 15. Enginn brautskráðist þó frá skólanum, þar sem nemendurnir gengu inn í lagadeild Háskóla Íslands þegar hann var stofnaður árið 1911. Kennarar lagaskólans urðu prófessorar við lagadeildina og fyrstu laganemarnir luku þaðan embættisprófi vorið 1912. Árið 1941 var heiti deildarinnar breytt í laga- og hagfræðideild (síðar viðskiptadeild) er formleg samvinna þessara deilda hófst. Árið 1962 varð lagadeild aftur sérstök háskóladeild.
Starfsemi lagadeildar fór í fyrstu eftir háskólalögunum frá 1909 og reglugerð frá 1912. Námið var ein heild og ein próflota tekin að því loknu, embættispróf í lögum. Árið 1936 urðu töluverðar breytingar á náminu og voru próf tvískipt. Með breytingum á reglugerð árið 1949 voru tekin upp sérstök forpróf í einstökum greinum, en að öðru leyti skiptist námið í fyrri og seinni hluta. Sú skipan hélst að mestu til ársins 1970, þegar gagngerar breytingar urðu á náms- og kennsluháttum í lagadeild. Með þeim breytingum var stigið merkilegt skref í þá átt að gera laganámið fjölbreyttara og nútímalegra og færa það til samræmis við breyttar aðstæður í þjóðfélaginu.
Allt til ársins 1992 byggðist starfsemi lagadeildar í megindráttum á þessari endurskoðun háskólareglugerðar, þótt á henni væru gerðar breytingar árin 1975, 1979, 1981 og 1987. Árið 1992 voru gerðar grundvallarbreytingar á námstilhögun í lagadeild, einkum um kjörnám og hlutaskiptingu náms, og síðan aftur árið 1999, sérstaklega um endurskoðun kjarnanáms, afnám hlutaskiptingar og upptöku einingakerfis. Haustið 2002 var enn tekin upp breyting á laganáminu, nú með upptöku BA-prófs í lögfræði og framhaldsnámi til embættisprófs, sem jafngildir meistaranámi. Gilda núna ákvæði háskólareglugerðar nr. 458/2000, með síðari breytingum, um laganámið.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd






