Umsókn



Grunnnám

Umsóknarferli

Umsóknarfrestur í grunnnám er til 5. júní fyrir háskólaárið 2012-2013.

Hægt er að sækja rafrænt um grunnnám frá 1. mars og nemendaskrá tekur á móti umsóknum.
Nánari upplýsingar veitir Nemendaskrá sem er staðsett á Háskólatorgi HÍ, 3. hæð til vinstri. Opið er virka daga frá 9-15. Sími: 525 4309. Netfang: nemskra@hi.is

Undirbúningur

Nemendur sem hyggja á laganám þurfa að hafa góðan grunn úr framhaldsskóla. Mikilvægt er að nemendur búi yfir góðri íslenskukunnáttu auk þess að hafa góð tök á dönsku og ensku. Þá skal nemendum bent á að margir framhaldsskólar bjóða upp á námskeið í lögfræði sem er ágætis undirbúningur fyrir nám í deildinni.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði í BA-nám er almennt stúdentspróf. Til að geta tekið námskeið á öðru ári þarf nemandi að hafa staðist inngang að lögfræði og almenna lögfræði. Athugið að þeir sem ætla að sækja um undanþágu vegna inntökuskilyrða verða að gera það sérstaklega hjá nemendaskrá HÍ fyrir 1. maí ár hvert.

Meistaranám

Tveggja ára fræðilegt og rannsóknartengt framhaldsnám í lögfræði, magister juris (mag. jur.), við lagadeild Háskóla Íslands. Inntökuskilyrði er BA-próf í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands. Lagadeild getur heimilað að nemandi sem hefur lokið sambærilegu prófi frá öðrum háskóla hefji framhaldsnám til meistaraprófs. Umfang rannsóknaverkefnis er 30ECTS einingar eða 60ECTS einingar. Meistaragráða (mag. jur.) er jafngild embættis- eða kandídatsprófi. Nemendum er heimilt að velja sér sérstakt skilgreint áherslusvið sem er samtals 60ECTS einingar af 120ECTS einingum, og ljúka þá meistaraprófi (mag. jur.) í lögfræði af tilgreindu áherslusviði.

Nemendur lagadeildar geta aukið sérhæfingu sína enn frekar með því að velja sér eitt af kjörsviðum eða með því að taka valgreinar í öðrum deildum Háskólans. Ennfremur stendur nemendum til boða að stunda hluta meistaranámsins við erlenda háskóla víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum.

Umsókn í meistaranám Rafrænt eyðublað

 

Umsóknarfrestur er til 15. Apríl og 15. október ár hvert. 

Hér má nálgast:

Meistaranám fyrir starfandi lögfræðinga

Lögfræðingum með embættispróf eða meistarapróf frá lagadeild Háskóla Íslands eða sambærilegt próf, stendur til boða að stunda almennt meistaranám, mag. jur., sérhæft meistaranám á áherslusviði, mag. jur. með áherslusviði, LL.M. nám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti eða stunda nám í einstökum meistaranámskeiðum án þess að útskrifast með meistaragráðu.
Starfandi lögfræðingum gefst þannig kostur á að viðhalda vitneskju og auka sérhæfingu.

Útskrifaðir lögfræðingar geta fengið 60 ECTS einingar metnar inn í mag. jur. meistaranámið sem er 120 ECTS einingar. Þeir þurfa því eingöngu að ljúka námskeiðum sem jafngilda 30 ECTS einingum og ritgerð til að geta útskrifast með meistarapróf í lögfræði, mag.jur. Hvert námskeið í meistaranámi við deildina er 6 ECTS einingar. Námið getur tekið frá einu ári upp í fjögur ár, allt eftir aðstæðum hvers og eins. Námskeið geta dreifst á átta misseri og því hentar þessi valkostur vinnandi lögfræðingum.

Ef umsækjandi hefur lokið námskeiðum innan áherslusviðs má meta þau sérstaklega inn í námið og þarf hann þar að leiðandi ekki að ljúka jafn mörgum einingum og ella.

LL.M. námið er nýtt sérhæft nám fyrir lögfræðinga sem vilja sérhæfa sig í lagareglum sem gilda um auðlindir og umhverfi með áherslu á íslensk, evrópsk og alþjóðleg sjónarmið. Námið fer eingöngu fram á ensku. Hægt er að ljúka því á einu eða tveimur árum.

Doktorsnám

Inntökuskilyrði í doktorsnám í lögfræði er meistarapróf eða sambærilegt próf í lögfræði frá Háskóla Íslands eða öðrum háskóla. Að jafnaði skulu doktorsnemar hafa lokið meistaraprófi eða sambærilegu prófi með fyrstu einkunn.

Umsóknarfrestur er til 15. apríl og skrásetningargjald aðeins kr. 45.000.-

Umsókninni skal fylgja staðfest endurrit prófskírteinis frá nemendaskrá.

Hafðu samband við skrifstofu lagadeildar í síma 525 4386 eða sendu tölvupóst á lagadeild@hi.is

deila á facebook

Mannréttindastofnun

Scandinavian Research Council for Criminology

Lagadeild hnappur Lagadeild Rannsóknarstofa í evrópuréttiRannsóknarstofa í umhverfis og auðlindarétti