Þverfaglegt nám í skattarétti og reikningskilum
Boðið er upp á nýtt þverfaglegt nám hjá lagadeild og viðskiptafræðideild í skattarétti og reikningskilum.
Nýtt meistaranám á vegum lagadeildar og viðskiptafræðideildar
Námið veitir fræðilega menntun á ýmsum sviðum er snerta skattamál og reikningsskil, og kemur þannig til móts við þarfir þjóðfélagsins fyrir rannsóknir, þjónustu og stefnumótun sem tengist skattamálum og reikningsskilum. Námið er 90ECTS eða 120ECTS einingar og miðað er við að lengd námsins sé tvö ár eða 4 misseri og lýkur með 18ECTS eininga meistararitgerð.
Lagadeild leggur til 6 námskeið sem eru 6ECTS einingar hvert og fjalla um innlendan og erlendan skattarétt. Framlag viðskiptafræðideildar er sambærilegt. Náminu lýkur með 18ECTS eininga meistaranámsritgerð.
Námið tekur mið af nemendum á vinnumarkaði og munu námskeiðin því vera kennd eftir kl. 14:00 á daginn. Tilvalið nám fyrir útskrifaða lögfræðinga með vinnu til að auka sérhæfingu sína.
Til að innritast í meistaranám í skattarétti og reikningsskilum þarf umsækjandi að hafa lokið BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands eða BS/BA prófi frá viðskiptadeild Háskólans eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi í sambærilegum greinum.
Nánari upplýsingar um námið má finna hjá Viðskiptafræðideild sem hefur umsjón með náminu og skila skal umsóknum um námið á skrifstofu viðskiptafræðideildar í Gimli.
Reglur um þverfaglegt nám í skattrétti og reikningsskilum
Upplýsingar um námið í kennsluskrá
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd






