Nám með vinnu
Meistaranám fyrir starfandi lögfræðinga
Lögfræðingum með embættispróf eða meistarapróf frá lagadeild Háskóla Íslands eða sambærilegt próf, stendur til boða að stunda almennt meistaranám, mag. jur., sérhæft meistaranám, mag. jur. með áherslusviði, LL.M. nám í auðlindarétti og alþjóðlegum umhverfisrétti, þverfaglegt meistaranám í skattarétti og reiknisskilum (í samvinnu við viðskiptafræðideild) eða stunda nám í einstökum meistaranámskeiðum án þess að útskrifast með meistaragráðu.
Námskeið 2010-2011
Námskeið 2011-2012
Starfandi lögfræðingum gefst þannig kostur á að viðhalda þekkingu og auka sérhæfingu.
Útskrifaðir lögfræðingar geta fengið 60 ECTS einingar metnar inn í mag. jur. meistaranámið sem er 120 ECTS einingar. Þeir þurfa því eingöngu að ljúka námskeiðum sem jafngilda 30 ECTS einingum og ritgerð til að geta útskrifast með meistarapróf í lögfræði, mag.jur. Hvert námskeið í meistaranámi við deildina er 6 ECTS einingar. Námið getur tekið frá einu ári upp í fjögur ár, allt eftir aðstæðum hvers og eins. Námskeið geta dreifst á átta misseri og því hentar þessi valkostur vinnandi lögfræðingum.
Ef umsækjandi hefur lokið námskeiðum innan áherslusviðs má meta þau sérstaklega inn í námið og þarf hann þar að leiðandi ekki að ljúka jafn mörgum einingum og ella.
Umsóknarfrestur í framhaldsnám er 15. apríl fyrir haustönn og 15. október fyrir vorönn. Sótt er um rafrænt á heimasíðu háskólans. Rafræn umsókn
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd






