Móttaka nýnema



Fyrsti tíminn

 

Lagadeild Háskóla Íslands býður nýnema sína velkomna til náms við deildina.

Nýnemakynning lagadeildar- glærur

Kynning á Uglu fyrir nýnema

Mentora nýnema:

Öllum nýnemum Lagadeildar hefur verið úthlutað mentor úr hópi nemenda deildarinnar sem stunda nám á 3. – 5 ári.    Eftir seinni fundinn í Háskólabíói þann 26. ágúst munu mentorarnir fara hver með sinn hóp í gönguferð um háskólasvæðið og sýna þeim helstu kennileiti.   Hlutverk mentors er að auðvelda aðkomu nýnema að nýjum skóla og styðja þá fyrstu skrefin. 

Hér má finna nánari kynningu á mentoraverkefninu í  Lagadeildinni: 

Bréf sent nýnemum lagadeildar

Stundaskrá 1. árs í BA-námi

Nýnemadagar HÍ  

Að virkja rafrænan aðgang

Við lok rafrænnar skráningar fá umsækjendur veflykil sem þeir nota til að fylgjast með umsókninni á nynemar.hi.is, en notendanafn er kennitala hvers og eins. Veflykillinn fylgir með gíróseðli fyrir skráningargjaldinu. Eftir að nemandi fær inngöngu og hefur greitt skrásetningargjald birtist hnappur á þeirri síðu og getur nemandinn þá sótt aðgang sinn að Uglu. Á Uglu geta nemendur fylgst með námsferli sínum og náð í allar helstu upplýsingar um námið. Prentkvóta má nálgast í Uglu, á þjónustuborðinu og í smiðju á menntavísindasviði. Hafi veflykill misfarist eða er ekki fyrir hendi geta nemendur fengið notendanafn og aðgangsorð á þjónustuborðinu í Háskólatorgi.

Kennsla hefst mánudaginn 29. ágúst.  Inngangur að lögfræði verður kennt fyrstu 4 vikurnar og lýkur með prófi laugardaginn 24. september. Kennsla í Almennri lögfræði hefst mánudaginn 26. september. Kennsla í Heimspekilegum forspjallsvísindum mun hefjast í fyrstu viku kennslu skv stundaskrá. Stundaskrá 1. árs.

Nýnemadagar

Á nýnemadögum fara fram kynningar á þeirri þjónustu sem stendur stúdentum til boða og ýmsir skemmtilegir viðburðir. Dagarnir eru haldnir til þess að bjóða nýnema velkomna og kynna þeim lífið og þjónustuna í Háskólanum. Dagskráin hefur að mestu farið fram á Háskólatorgi og margt gagnlegt í boði. Þar má nefna gönguferð og kynningu á háskólasvæðinu, örfyrirlestra um námsráðgjöf og skiptinám, kynningu á þjónustu Félagsstofnunar stúdenta og margt fleira. Einnig hafa helstu þjónustustofnanir verið með kynningarbása þar sem nemendur geta fengið svör við fjölmörgum spurningum. Dagskrá og tímasetningar verða kynntar síðar.

Verið velkomin - verið með

Nýnemar, sem og aðrir stúdentar, eru hvattir til þess að taka virkan þátt í dagskrá nýnemadaganna.

Föstudaginn 26. ágúst verður haldinn kynningarfundur fyrir nýnema í grunnnámi í aðalsal Háskólabíós kl. 15:00

Kynningarfundur fyrir nýnema í BA-námi í lagadeild:

Föstudaginn 26. ágúst kl. 15.00 mun forseti Félagsvísindasviðs og starfsfólk sviðsins halda kynningarfund með nemendum í grunnnámi í aðalsal Háskólabíós.   Ætlast  er til að allir nýnemar mæti á fundinn.

Að fundi loknum mun Lagadeild halda sérstakan kynningarfund í sal 2 í Háskólabíói.   Þar mun Róbert R. Spanó forseti Lagadeildar ávarpa nýnema deildarinnar.  Deildarstjóri á skrifstofu Lagadeildar mun kynna ýmist hagnýt atriði varðandi námið og einnig mun formaður Orators, félags laganema kynna starf félagsins.   Að fundi loknum býður Orator til grillveislu við Lögberg.

deila á facebook

Mannréttindastofnun

Scandinavian Research Council for Criminology

Lagadeild hnappur Lagadeild Rannsóknarstofa í evrópuréttiRannsóknarstofa í umhverfis og auðlindarétti