Inntökuskilyrði
Grunnnám
Undirbúningur
Nemendur sem hyggja á laganám þurfa að hafa góðan grunn úr framhaldsskóla. Mikilvægt er að nemendur búi yfir góðri íslenskukunnáttu auk þess að hafa góð tök á dönsku og ensku. Þá skal nemendum bent á að margir framhaldsskólar bjóða upp á námskeið í lögfræði sem er ágætis undirbúningur fyrir nám í deildinni.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði í BA-nám er íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla, þá nægir lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (Háskólabrú) til inngöngu í lagadeild.. Til að geta tekið námskeið á öðru ári þarf nemandi að hafa staðist inngang að lögfræði og almenna lögfræði. Sjá nánar um inntökuskilyrði í Háskóla Íslands.
Undanþágur frá inntökuskilyrðum í BA-nám
Ekki eru veittar undanþágur frá inntökuskilyrðum við lagadeild.
Meistaranám
Inntökuskilyrði í meistaranám í lögfræði er BA-próf í lögfræði. Lagadeild getur heimilað að stúdent sem lokið hefur sambærilegu prófi í lögfræði frá öðrum háskóla hefji framhaldsnám við deildina til meistaraprófs. Meistaranám lagadeildar er í senn hagnýtt og vandað. Í meistaranáminu beita nemendur grunnþekkingu sinni í lögfræði á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt. Lagt er kapp á að nemendur sýni fram á skilning og tök á námsefninu. Þessi áhersla á sjálfstæð vinnubrögð undir umsjón færustu kennara, undirbýr nemendur markvisst fyrir þau fjölmörgu störf sem þeim bjóðast að námi loknu.
Nemendur lagadeildar geta aukið sérhæfingu sína enn frekar með því að velja sér kjörsvið eða með því að taka valgreinar í öðrum deildum Háskólans. Ennfremur stendur nemendum til boða að stunda hluta meistaranámsins við erlenda háskóla víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum.
Doktorsnám
Inntökuskilyrði í doktorsnám í lögfræði er meistarapróf eða sambærilegt prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands eða öðrum háskóla. Að jafnaði skulu doktorsnemar hafa lokið meistaraprófi eða sambærilegu prófi með fyrstu einkunn.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd






