Áherslusvið í MA námi
Með því að bjóða upp á tíu áherslusvið er nemendum gefinn kostur á að auka sérhæfingu sína. Samfélagið verður sífellt flóknara og atvinnulífið kallar eftir sérhæfingu á flestum ef ekki öllum sviðum. Boðið er upp á fjölbreyttustu möguleika til sérhæfingar með þessum nýju áherslusviðum lagadeildar HÍ.
Nemendur eru hvattir til að skoða vel hvaða námskeið eru innan hvers sviðs og byrja strax að taka námskeið sem saman mynda einstök áherslusvið. Er það m.a. vegna þess að flest valnámskeið eru kennd á tveggja ára fresti og því mikilvægt að átta sig á því hvaða námskeið þarf að taka. Ekki þarf að sækja sérstaklega um það til deildarinnar að taka námskeið á sérstöku sviði.
Sérstaklega skal áréttað að námskeið innan hvers áherslusviðs eru ekki valkvæð nema þau, sem tilgreind eru undir sama tölulið.
Dæmi: Nemandi sem hefur áhuga á að útskrifast með áherslu á stjórnsýslurétt verður að standast próf í námskeiðunum stjórnsýsluréttur III, sveitarstjórnarréttur og persónuréttur II og er ekkert val um þau námskeið en síðan er nægilegt að hann standist eitt af námskeiðunum sem eru talin upp í tl. 3 og 4.
Umsóknareyðublað um áherslusvið (.pdf)
Á áherslusviðunum er hægt að velja um sérhæfingu í eftirfarandi greinum:
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á stjórnsýslurétt
1. Stjórnsýsluréttur III
2. Sveitarstjórnarréttur
3. Almannatryggingaréttur eða umhverfisréttur eða íslenskur skattaréttur-sérstakur hluti.
4. Starfsmannaréttur eða persónuréttur I, eða íslenskur skattaréttur-almennur hluti.
5. Persónuréttur II eða opinbert eftirlit með fjármála- og viðskiptamarkaðnum
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á refsirétt
1. Viðurlög og viðurlagapólitík
2. Fjármuna- og efnahagsbrot
3. International Criminal Law
4. Ofbeldisbrot frá sjónarhóli kvennaréttar
5. Umhverfisrefsiréttur eða hlutverk dómara og lögmanna
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á réttarfar
1. Hlutverk dómara og lögmanna
2. Fullnustugerðir
3. Skuldaskilaréttur
4. Lögskýringar
5. Þátttaka í alþjóðlegri málflutningskeppni eða réttarheimspeki
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á umhverfis- og auðlindarétt
1. Umhverfisréttur
2. International Environmental Law
3. Natural Resources Law
4. Law of the Sea
5. International Economic Law eða EC Environmental Law.
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á þjóðarétt
1. Basic Course in Public International Law
2. International Human Rights
3. Law of the Sea
4. International Economic Law eða Law of Armed Conflict eða Evrópskar mannréttindareglur.
5. International Environmental Law eða samanburðarlögfræði eða þátttaka í
alþjóðlegri málflutningskeppni
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á persónu- og hugverkarétt
1. Persónuréttur I
2. Persónuréttur II
3. Auðkennaréttur eða einkaleyfi og hönnunarvernd
4. Höfundaréttur eða upplýsingatækniréttur
5. Fjölmiðlaréttur
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á Evrópurétt
1. EU-EEA Law I
2. EU-EEA Law II
3. Public International Law
4. Samkeppnisréttur I eða samkeppnisréttur II
5. EC Environmental Law eða Evrópskar mannréttindareglur eða þátttaka í
alþjóðlegri málflutningskeppni.
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á fjármunarétt
1. Almennur viðskipta- og neytendaréttur
2. Fasteignakauparéttur
3. Verktaka- og útboðsréttur
4. Leiguréttur eða vátryggingaréttur
5. Fullnustugerðir eða skuldaskilaréttur eða veðréttur og ábyrgðir
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á félagarétt
1. Verðbréfamarkaðsréttur
2. Félagaréttur I
3. Félagaréttur II
4. Samkeppnisréttur I
5. Samkeppnisréttur II eða veðréttur og ábyrgðir eða opinbert eftirlit með fjármála- og viðskiptamarkaðnum eða rafbréf og önnur viðskiptabréf.
Meistari í lögfræði (mag. jur.) með áherslu á viðskipta- og skattarétt
1. Íslenskur skattaréttur - almennur hluti.
2. Íslenskur skattaréttur - sérstakur hluti.
3. Alþjóðlegur skattaréttur - almennur hluti.
4. Alþjóðlegur skattaréttur - sérstakur hluti
5. Opinbert eftirlit með fjármála- og viðskiptamarkaðnum eða félagaréttur
Í sérstökum tilvikum getur rannsóknanámsnefnd heimilað aðra samsetningu áherslusviðs samkvæmt 1. gr. laga lagadeildar um áherslusvið.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd






