Nám
Námsleiðir í hagfræðideild
Markmið bæði BS og MS náms í Hagfræðideild er að veita nemendum góðan undirbúning í hagfræði, stærðfræði og tölfræði en gefa jafnframt möguleika á sérhæfingu í öðrum greinum sem falla að áformum nemenda um framtíðarnám og störf. Menntun í deildinni gagnast einstaklingum í hinum ýmsu atvinnugreinum; frá blaðamennsku til reksturs fyrirtækja, frá kennslu til starfa innan fjármálafyrirtækja, frá rannsóknum til opinberrar stjórnsýslu.
Inntökupróf
Inntökupróf fyrir nemendur sem hefja grunnnám í Hagfræðideild á haustmisseri 2012 verður haldið í júní.
Reglur um inntöku nýnema í hagfræði
Grunnnám
Nemendur sem hafa áhuga á að læra hagfræði geta valið um BS nám í hagfræði sem er 180 einingar eða BA nám í hagfræði sem er 120 einingar ásamt 60 eininga aukagrein en þar læra nemendur aðra námsgrein samhliða hagfræði.
Framhaldsnám
Í MS námi íhagfræði er boðið upp á þrjár MS námsleiðir, hagfræði, fjármálahagfræði og heilsuhagfræði.
Doktorsnám Ph.D.
Deildin býður upp á doktorsnám sem lýkur með Ph.D. gráðu. Doktorsnám í Hagfræðideild byggir að mestu á sjálfstæðum rannsóknum nemanda undir handleiðslu kennara.
Upplýsingar um Ph.D. nám í kennsluskrá
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar


