Hagfræði BS



Nám
Kjarni námsins felst í þremur námskeiðum í þjóðhagfræði, fjórum í rekstrarhagfræði, þremur í hagrannsóknum, þremur í stærðfræði og tveimur í tölfræði. Nemendur geta jafnframt valið sér fjölmörg námskeið á sviði hagfræði, fjármálafræði og almennrar viðskiptafræði.
BS nám í hagfræði er 180 einingar.

Markmið
Markmið námsins er að undirbúa nemendur nægilega vel í hagfræði, stærðfræði og tölfræði til þess að þeir geti tekist á við krefjandi framhaldsnám, án þess að fórnað sé hagnýtum áherslum sem nýtast í fyrirtækjum á sviði fjármála og annarra viðskipta.

Atvinnumöguleikar
BS nám í hagfræði hentar vel nemendum sem ætla að leggja fyrir sig störf sem hagfræðingar við ráðgjöf, rannsóknir á sviði efnahagsmála og ýmiss konar störf sem krefjast sérfræði þekkingar. Unnt er að skipuleggja námið á þann hátt að fjármál verði sérsvið með hagfræðinni. Slíkt nám er mjög góður undirbúningur fyrir störf í fjármálageiranum.

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Ráðgjafi BS nema í hagfræði um skipulagningu náms innan skóla og erlendis og um reglur og val leiðbeinanda við BS ritgerð er Tór Einarsson, prófessor (tor@hi.is).

Umsjón: Þórólfur Geir Matthíasson, prófessor (totimatt@hi.is)

deila á facebook