Hagfræði BA



Nám
BA námið veitir nemendum færi á að læra aðra námsgrein samhliða hagfræði og er því ætlað þeim sem vilja afla sér almennari menntunar. Einn helsti kostur BA námsins er mikill sveigjanleiki. Þriðjung námsins má taka í öðrum deildum. Ekki er þó skylda að velja þennan þriðjung (60 ein) námsins aðeins úr einni deild því heimilt er að hafa óskilgreinda aukagrein.
Deildin býður upp á sex vel skilgreindar leiðir fyrir BA nema þar sem þeir taka eina eftirtalinna greina sem aukagrein: Fjölmiðlafræði, heimspeki, lögfræði, sagnfræði, stjórnmálafræði og viðskiptafræði.
BA nám í hagfræði er 180 einingar (120 e. + 60 e. aukagrein).

Markmið
Markmið námsins er að undirbúa nemendur nægilega vel í hagfræði, stærðfræði og tölfræði til þess að þeir geti tekist á við krefjandi framhaldsnám, án þess að fórnað sé hagnýtum áherslum sem nýtast í fyrirtækjum á sviði fjármála og annarra viðskipta.

Atvinnumöguleikar
BA nám í hagfræði með eina af ofantöldum greinum sem aukagrein veitir góða almenna undirstöðu fyrir atvinnulífið en opnar jafnframt dyr að framhaldsnámi í þessum greinum.  Þannig geta tilvonandi blaðamenn fengið góðan undirbúning í BA námi í hagfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein. Slíkt nám veitir einnig góðan undirbúning fyrir framhaldsnám í fjölmiðlafræði.

Meðfylgjandi eru nokkur dæmi um 60 eininga nám sem BA nemendur í hagfræði geta tekið.

Stundatöflur

Félagslíf

Upplýsingar um námið í kennsluskrá

Hafa samband
Ráðgjafi BA nema í hagfræði um skipulagningu náms innan skóla og erlendis, um reglur og val leiðbeinanda við  BA ritgerð er Birgir Þór Runólfsson, dósent (bthru@hi.is).

Umsjón: Birgir Þór Runólfsson, dósent (bthru@hi.is)

deila á facebook