Um Félagsráðgjafardeild



Félagsráðgjafardeild er ein 6 deilda á Félagsvísindasviði. Nemendur deildarinnar eru um 500 talsins, þar af um fjórðungur í framhaldsnámi.

Við deildina starfa 15 fastráðnir kennarar, 2 prófessorar, 3 dósentar, 4 lektorar og 6 aðjúnktar. Auk þess starfa við deildina fjölmargir stunda - og starfsþjálfunarkennarar.

Á skrifstofu deildarinnar eru þrír starfsmenn í tveimur stöðugildum, deildarstjóri og tveir verkefnastjórar.

Deildarforseti er Dr. Steinunn Hrafnsdóttir (steinhra@hi.is) og varadeildarforseti er Dr. Guðný Björk Eydal (ge@hi.is)

Við deildina eru reknar tvær rannsóknarstofnanir

Auk þess er deildin aðili að Félagsvísindastofnun

Nemendafélög nemenda í félagsráðgjöf eru tvö

  • Félag nemenda í grunnnámi er Mentor
  • Félag nemenda í framhaldsnámi er  Ólafía

Félögin standa fyrir ýmsum uppákomum fyrir nemendur og sinna hagsmunagæslu fyrir þá. Meðal annars sitja fulltrúar nemenda í deildarráði og á deildarfundum.

Félagsráðgjafardeild og stofnanir tengdar henni kappkosta að veita nemendum sem besta þjónustu.

deila á facebook

Kynningarefni

Félagsráðgjöf

Félagsráðgjöf (BA/MA)

Barnavernd og rannsóknarnám

Barnavernd
Félagsráðgjöf (MA/PhD)

Öldrunarfræði NordMaG

Öldrunarfræði (dipl./MA/NordMaG)

Háskóli unga fólksins

Félagsráðgjafardeild 2010