Samstarf
Félagsráðgjafardeild er einn af stofnendum Rannsóknastofnunar í barna- og fjölskylduvernd (RBF) og í tengslum við það skapast fjölbreytt samstarf við aðila á vettvangi. Stofn- og samstarfsaðilar RBF eru: Reykjarvíkurborg (velferðarsvið), Barnaverndarstofa, Biskupsstofa, Efling-stéttarfélag, félags- og tryggingamálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, Reykjanesbær. Ári síðar bættist við Umboðsmaður barna.
Kennarar við deildina eru aðilar að ýmsum rannsóknarteymum og verkefnum jafnt innanlands sem erlendis.
Félagsráðgjafardeild tekur virkan þátt í erlendu samstarfi bæði við háskóla og rannsóknarstofnanir. Töluvert er um að samstarfsaðilar frá Norðurlöndunum og víðar komi í heimsóknir bæði til að fræðast og halda fyrirlestra á vegum deildarinnar. Þá fjölgar með ári hverju norrænum nemum sem taka starfsþjálfun sína hér á landi eða einstök námskeið við deildina.
Deildin hefur gert samstarfssamninga við ýmsa aðila meðal annars um kostun á stöðum. Má þar nefna Framkvæmdasjóð aldraðra, Rauða kross Íslands, Reykjavíkurborg, Barnaverndarstofu, o.fl. Vegna starfsþjálfunar eru samningar við allflest sveitarfélög og ýmsar sérhæfðar stofnanir þar sem félagsráðgjafar starfa.
Virkt samstarf er við háskólann í Lundi og háskólann í Jyväskylä um norrænt meistaranám í öldrunarfræðum.
Félagsráðgjafardeild er aðili að Nordplus og Erasmus og hefur tengsl við ýmsar erlendar háskólastofnanir.
ÍsForsa er félag um rannsóknir á sviði félagsráðgjafar á Íslandi sem stofnað var vorið 2002. Félagið er aðili að Forsa sem eru norræn samtök um rannsóknir í félagslega geiranum og fræðilega þróun félagsráðgjafar.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Kynningarefni
|
Félagsráðgjöf (BA/MA) |
|
Barnavernd |
|
Öldrunarfræði (dipl./MA/NordMaG) |
|
Háskóli unga fólksins |




