Diplómanám í öldrunarfélagsráðgjöf



Markmið námsleiðarinnar er að koma til móts við þörf fyrir sérhæfða þekkingu og færni á sviði öldrunarfélagsráðgjafar. Námið skapar félagsráðgjöfum tækifæri til að uppfylla kröfur til sérfræðiréttinda í félagsráðgjöf á heilbrigðissviði.

Inntökuskilyrði:
Umsækjendur skulu hafa lokið starfsréttindanámi í félagsráðgjöf.
Í námi til starfsréttinda skal eftirfarandi námskeiðum hafa verið lokið: Öldrun og málefni aldraðra og Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum.
Umsækjendur skulu hafa hlotið/ljúka á námstímanum 40 stundum í handleiðslu.

Fylgigögn með umsókn:

  • Persónuleg greinargerð um forsendur námsvals
  • Vottorð um starfsreynslu
  • Tvær (lokaðar) umsagnir (yfirmanns, samstarfsaðila, kennara)
  • Samþykki yfirmanns til að stunda námið samhliða starfi, ef við á

Vinsamlega athugið að umsókn er ekki afgreidd ef framangreind gögn fylgja ekki umsókn.

Umsjón: Sigurveig H. Sigurðardóttir, lektor

deila á facebook

Kynningarefni

Félagsráðgjöf

Félagsráðgjöf (BA/MA)

Barnavernd og rannsóknarnám

Barnavernd
Félagsráðgjöf (MA/PhD)

Öldrunarfræði NordMaG

Öldrunarfræði (dipl./MA/NordMaG)

Háskóli unga fólksins

Félagsráðgjafardeild 2010