Þjóðfræði



Þjóðfræði heyrir í senn til hug- og félagsvísinda, enda fjalla þjóðfræðingar jöfnum höndum um aðstæður fólks og samfélag á hverjum tíma og svo tjáningu þess, listfengi og fagurfræði hversdagsins.

Á meðal viðfangsefna þjóðfræðinnar eru sögur og sagnir, heimilis- og atvinnuhættir, trú og tónlist, siðir og venjur, hátíðir og leikir, klæðnaður og matarhættir, svo fátt eitt sé nefnt. Áhersla er lögð á hvernig fólk mótar líf sitt og umhverfi undir kringumstæðum sem það hefur ekki mótað sjálft og hvernig fólk lifir í samfélagi hvert við annað í þeim margvíslegu hópum sem það tilheyrir.

Námið
Eftirfarandi tvær námsleiðir eru í boði í meistaranámi í þjóðfræði:

Fjarnám
Öll námskeið í þjóðfræði eru aðgengileg í fjarnámi.

Fyrirkomulag fjarnámsins verður þannig að fyrirlestrar eru teknir upp og hægt er að nálgast upptökurnar í námsumsjónarkerfi Háskólans (Uglunni) innan tveggja sólahringa frá upptöku. Kennarar setja kennsluáætlun, leslista, glærur og annað efni inná heimasvæði hvers námskeiðs í Uglunni. Auk þess verður boðið upp á stutta fjarfundi þrisvar á misseri í flestum námskeiðum. Háskóli Íslands á í góðu samstarfi við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar á landinu og þangað geta nemendur mætt á fjarfundi en allar fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar hafa gagnvirkan fjarfundabúnað. Þar geta nemendur einnig þreytt próf á vegum þjóðfræðiskorar. Nemendum er velkomið að mæta í tíma þegar þeir eru í Reykjavík.

Félagslíf
Félag þjóðfræðinema heitir Þjóðbrók og er með öflugri nemendafélögum innan háskólans.

Hafa samband
Allar fyrirspurnir og erindi berist Ásu Bernharðsdóttur verkefnisstjóra, asab@hi.is.

Námsbrautarstjóri: Terry Gunnell, terry@hi.is, viðtalstími þriðjudagar kl. 13:30-15:30 í st. 126 í Odda.

Umsjónarkennarar: Terry Gunnell prófessor, terry@hi.is, og Valdimar Tr. Hafstein dósent vth@hi.is

deila á facebook

Skiladagur lokaritgerða vegna brautskráningar í júní 2012

BA-ritgerðir: 3. maí 2012

MA-/MLIS-ritgerðir: 3. maí 2012

Bæklingur