Fötlunarfræði
Fötlunarfræði er ung fræðigrein sem hafnar einhliða læknisfræðilegum skilgreiningum á fötlun en leggur þess í stað áherslu á félagslegan skilning og þátt menningar og umhverfis í að skapa og viðhalda fötlun. Markmið námsins er að veita nemendum viðamikla fræðilega og hagnýta þekkingu á fjölbreytilegum þáttum sem varða fatlað fólk og málefni þess.
Námið
Framhaldsnám í fötlunarfræði miðar að því að nemendur öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á málefnum fatlaðs fólks. Þetta felur meðal annars í sér þekkingu á sögulegri þróun kenninga og hugmynda um fötlun og rannsóknir á því sviði. Lögð er áhersla á fötlunarfræði sem nýja fræðigrein og að nemendur kynnist þeim ólíkum áherslum sem er að finna innan hennar. Mikilvægt er að tengja námið íslenskum aðstæðum, því er athyglinni sérstaklega beint að nýjum íslenskum fötlunarrannsóknum auk þess sem fjallað er um erlendar rannsóknir og nýjungar í þjónustu við fatlað fólk. Fræðileg umfjöllun er sett í samhengi við baráttuhreyfingar fatlaðra, þróun mannréttinda, alþjóðlega og innlenda stefnumótun, lagasetningar og stöðu fatlaðs fólks í menningu samtímans. Þá er rýnt í félagsleg og menningarleg viðbrögð við fötluðu fólki, meðal annars ímyndir og hlutverk fatlaðra í dægurmenningu, fjölmiðlum og almennri orðræðu. Líf, aðstæður og reynsla fatlaðs fólks er miðlæg í öllum viðfangsefnum námsins.
Með því að bjóða upp á fjölbreyttar námsleiðir er unnt að mæta ólíkum þörfum og óskum þeirra sem hafa áhuga á náminu.
- Starfstengt MA-nám (120 ECTS)
- Rannsóknamiðað MA-nám (120 ECTS)
- MA-nám í fötlunarfræðum með áherslu á margbreytileika (120 ECTS)
- Diplómanám í fötlunarfræðum (30 ECTS)
- MA-nám í fötlunarfræðum með áherslu á opinbera stjórnsýslu
- Diplómanám í fötlunarfræðum með áherslu á opinbera stjórnsýslu (32 ECTS): Þetta áherslusvið í diplómanámi er ætlað þeim sem vinna með fötluðu fólki í opinberri stjórnsýslu. Í náminu er lögð sérstök áhersla á sveitarstjórnarstigið. Markmið námsins er að nemendur fái fræðilega og hagnýta þekkingu um fatlað fólk og málefni þess. Hægt er að fá diplómanámið metið sem hluta af MA-námi í fötlunarfræði og sem hluta af MPA-námi í opinberri stjórnsýslu með áherslu á fötlunarfræði að uppfylltum inntökuskilyrðum.
- Doktorsnám í fötlunarfræðum (210 ECTS)
Markmið
Markmið námsins er að veita nemendum viðamikla fræðilega og hagnýta þekkingu á fjölbreytilegum þáttum sem varða fatlað fólk og málefni þess. MA námið miðar jafnframt að nemendur öðlist færni í rannsókna- og þróunarstörfum með áherslu á að tengja fræði og starf.
Framhaldsnám í fötlunarfræðum er ætlað fólki sem starfar að málefnum fatlaðra eða vill hasla sér völl á þeim vettvangi. Námið hentar einkar vel fyrir starfsfólk og stjórnendur í þjónustukerfinu og aðra sem vilja starfa að stefnumótun eða öðrum leiðandi störfum í málefnum fatlaðs fólks. Námið býr fólk undir margvísleg störf að málefnum fatlaðra með áherslu á leiðandi störf að framþróun í málaflokknum.
Námið hentar einnig fólki sem vill sinna rannsóknum og fræðistörfum eða undirbúa sig undir frekara fræðilegt nám, doktorsnám, í fötlunarfræðum.
Hafa samband
Vinsamlega sendið öll erindi og fyrirspurnir til Höllu Maríu Halldórsdóttur, verkefnisstjóra (hmh@hi.is)
Umsjónarmenn náms
Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent hbs@hi.is
Rannveig Traustadóttir, prófessor rannvt@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
-
Háskóli Íslands 100 ára
Háskólinn í nærmynd, Myndbönd, Ljósmyndir, Svipmyndir úr sögunni, Vísindaþættir
Skiladagur lokaritgerða vegna brautskráningar í júní 2012
BA-ritgerðir: 3. maí 2012
MA-/MLIS-ritgerðir: 3. maí 2012


