Bókasafns-og upplýsingafræði
Kennsla í bókasafns- og upplýsingafræði er í senn fræðileg og hagnýt og tekur skipulag námsins mið af þeim miklu og hröðu breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi bókasafns- og upplýsingafræðinga.
Fagheitið bókasafns- og upplýsingafræðingur er lögverndað. Nemendur sem ljúka BA-námi í bókasafns- og upplýsingafræði eða framhaldsnámi (MA eða MLIS) í bókasafns- og upplýsingafræði, geta sótt um leyfi til menntamálaráðuneytisins um að fá að kalla sig bókasafns- og upplýsingafræðing.
Nánari upplýsingar um námskeið og námskeiðslýsingar er að finna í kennsluskrá.
Kynningarbæklingur um bókasafns- og upplýsingafræði
Upptökur frá Málþingi sem haldið var þann 14. október 2011:
Námið
Eftirfarandi námsleiðir á framhaldsstigi standa til boða í bókasafns- og upplýsingafræði:
MA-nám (120e)
Einstaklingsbundið rannsóknartengt nám til MA-gráðu stendur til boða í bókasafns- og upplýsingafræði. Einstaklingsbundið MA-nám er eingöngu fyrir þá nemendur sem hafa lokið BA-prófi með bókasafns- og upplýsingafræði sem aðalgrein. Nemendur skipuleggja nám sitt í samráði við leiðbeinanda og sérstaka prófnefnd.
Nemendur geta valið um að skipuleggja námið eftir áhugasviði í samráði við leiðbeinanda og sérstaka prófnefnd.
Einnig stendur til boða að velja eftirfarandi sérhæfingarleiðir í MA-námi:
- Stjórnun og stefnumótun
- Upplýsinga- og skjalastjórn og rafræn samskipti hjá skipulagsheildum
- Upplýsingafræði og þekkingarmiðlun
- Bókasafns- og upplýsingafræði: Með áherslu á margbreytileika
MLIS-nám (120e)
Meistaranám í bókasafns- og upplýsingafræði (MLIS) er fyrir þá sem hyggjast starfa sem bókasafns- og upplýsingafræðingar og/eða skjalastjórar og/eða vefstjórnun. MLIS-námið er einungis ætlað þeim sem þegar hafa lokið háskólagráðu í annarri grein en bókasafns- og upplýsingafræði.
MLIS-námið hefur verið þróað með hliðsjón af eftirfarandi: The Standards for Library Schools Update: Report 1999 frá Alþjóðasambandi bókasafns- og bókavarðafélaga (IFLA), The Standards for Accreditation of Masters Programs in Library and Information Studies 1992 frá Sambandi bandarískra bókasafna (ALA) og The Competencies for Special Librarians of the 21st Century frá Sambandi bókavarða í sérfræði- og rannsóknarbókasöfnum (SLA). Námsleiðin endurspeglar þörf fyrir fagmenntun í stétt þar sem meistaragráða verður æ algengari á Íslandi eins og annars staðar.
Nemendur geta lokið skyldunámi sem gerð er krafa um í MLIS námi og valið valnámskeið í samráði við leiðbeinanda, eða valið um eftirfarandi kjörsvið:
- Stjórnun og stefnumótun
- Upplýsinga- og skjalastjórn og rafræn samskipti hjá skipulagsheildum
- Upplýsingafræði og þekkingarmiðlun
- Skipulag þekkingar
- Sérhæfing í upplýsingastjórnun og rafrænum samskiptum í opinberri stjórnsýslu (MPA-gráða)
Diplómanám
Viðbótarnám í bókasafns- og upplýsingafræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Námið er 30e hlutanám sem ljúka má á einu háskólaári. Inntökuskilyrði er BA-próf eða sambærilegt próf. Í boði eru eftirtaldar námsleiðir í diplómanámi:
- Stjórnun og stefnumótun
- Upplýsinga- og skjalastjórn og rafræn samskipti hjá skipulagsheildum
- Upplýsingafræði og þekkingarmiðlun
- Skipulag þekkingar
Doktorsnám
Hægt er að stunda doktorsnám við námsbrautina
Hafa samband
Allar fyrirspurnir og erindi sendist til Brynhildar Lilju Björnsdóttur, verkefnisstjóra. Netfang: blb1@hi.is.
Fastir kennarar í bókasafns- og upplýsingafræði:
Ágústa Pálsdóttir, prófessor agustap@hi.is
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, prófessor jg@hi.is
Stefanía Júlíusdóttir, lektor stj12@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Skiladagur lokaritgerða vegna brautskráningar í júní 2012
BA-ritgerðir: 3. maí 2012
MA-/MLIS-ritgerðir: 3. maí 2012


