Um Félagsvísindasvið
Félagsvísindasvið er stærsta fræðasvið Háskóla Íslands og býður upp á fjölda námsleiða í sex deildum: félags- og mannvísindadeild, félagsráðgjafardeild, hagfræðideild, lagadeild, stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild. Námið er fjölbreytt og mikill sveigjanleiki gefur nemendum kost á að taka aðal- og aukagrein eða sérhæfa sig innan þeirrar greinar sem þeir kjósa að innrita sig í.
Fjölbreytt störf að loknu námi
Nemendum í þeim greinum sem kenndar eru við sviðið fjölgar stöðugt, enda eykst eftirspurnin eftir fólki með menntun í félagsvísindum sífellt. Nám í félagsvísindum undirbýr stúdenta undir afar fjölbreytt störf, t.d. í fjölmiðlum, í opinbera geiranum, í alþjóðasamskiptum, bönkum og fjármálafyrirtækjum, lögfræðistofum og ráðgjafarfyrirtækjum, svo fátt eitt sé nefnt.
Miklar kröfur til nemenda og kennara
Kennarar við félagsvísindasvið eru færustu fræðimenn í sínu fagi og miklar kröfur eru gerðar til kennara og nemenda. Fjallað er um viðfangsefni félagsvísindanna á frjóan og gagnrýninn hátt og krafist er virkrar þátttöku nemenda. Margir nemendur af félagsvísindasviði hafa lokið framhaldsnámi við framúrskarandi skóla erlendis og það hefur sýnt sig að grunnnám við Háskóla Íslands er frábær undirbúningur undir framhaldsnám úti um allan heim.
Jafnréttisáætlun Félagsvísindasviðs má sjá hér (pdf)
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Þjónustuborð í Gimli:
Opið: mán-fim. 8:00-17:00, föstud. 8:00-16:00
Sími: 525-5870
Netfang: gimli.info@hi.is
Skrifstofur Félagsvísindasviðs:
Opið: mán-föst. 10-12 og 13-15.30
Félagsvísindasvið - veftímarit
Rannsóknastofnanir
- Alþjóðamálastofnun
- Félagsvísindastofnun
- Hagfræðistofnun
- Lagastofnun
- Mannréttindastofnun
- Miðstöð margbreytileika og kynjarannsókna
- Norræna sakfræðiráðið
- Norræna viðskiptafræðiráðið
- Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr
- Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd
- Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála
- Viðskiptafræðistofnun


