Silja Aðalsteinsdóttir
Bókmenntafræðingurinn, gagnrýnandinn og þýðandinn Silja Aðalsteinsdóttir útskrifaðist frá Háskóla Íslands með tvöfalda BA-gráðu í íslensku og ensku árið 1974. Hún hélt áfram námi og árið 1977 lauk hún MA-gráðu í íslenskum bókmenntum.
Síðustu ár hefur Silja starfað við fjölmiðla, meðal annars sem blaðamaður, menningarritstjóri DV og ritstjóri Tímarits Máls og menningar. Silja hefur einnig verið virkur gagnrýnandi frá því árið 1971, bæði á ritverk og leiksýningar. Þá hefur Silja starfað sem þýðandi og er nýjasta verk hennar íslensk þýðing á Wuthering Hights eftir Emily Brönte. Fyrir þýðingu sína hlaut Silja íslensku þýðingarverðlaunin.
Að eigin sögn hefði Silja aldrei starfað við skriftir hefði hún ekki lokið námi við Háskóla Íslands. „Þessi menntun lagði grunninn að því hver ég er í dag," segir hún.
Árið 1974 útskrifuðust 273 nemendur úr Háskóla Íslands
Hugvísindasvið Háskóla Íslands

