Um deildina



Íslensku- og menningardeild varð til 1. júlí 2008 þegar nýtt skipulag Háskóla Íslands tók gildi. Þá sameinuðust íslenskuskor og bókmennta- og málvísindaskor sem voru stofnaðar haustið 1991 í nýja deild, sem er ein fjögurra deilda á Hugvísindasviði og er ein sú fjölmennasta innan Háskólans. Rætur deildarinnar eru í Hugvísindadeild sem lengstum hét Heimspekideild og varð til við stofnun Háskóla Íslands 1911. Þá hófst jafnframt kennsla í íslenskum fræðum sem eru því elsta kennslugrein deildarinnar.

Þegar Heimspekideild var skipt í skorir haustið 1991 voru aðeins kenndar fjórar þeirra greina sem nú eru innan Íslensku- og menningardeildar; íslenska, íslenska fyrir erlenda stúdenta (nú íslenska sem annað mál), almenn bókmenntafræði og almenn málvísindi. Flestar hinna greinanna hafa bæst við undanfarinn áratug. Í deildinni eru nú kenndar milli 10 og 20 greinar, sumar bæði á grunn- og framhaldsstigi, en sumar eingöngu í grunnnámi og aðrar eingöngu í framhaldsnámi. Fastir kennarar eru á fjórða tug og stundakennarar skipta tugum hverju sinni.

Deildarforseti er Dagný Kristjánsdóttir prófessor, sími 525 4721, dagny@hi.is

Varadeildarforseti er Gauti Kristmannsson prófessor, sími 525 4192, gautikri@hi.is

Námsbrautarformaður íslensku: Jóhannes Gísli Jónsson
Námsbrautarformaður íslensku sem annars máls: Jón Karl Helgason
Námsbrautarformaður menningargreina: Gauti Kristmannsson

Hugvísindasvið sér um stoðþjónustu við deildina. Skrifstofa Hugvísindasviðs er til húsa í Aðalbyggingu, 3. hæð og er opin frá 10 - 12 og 13 - 15.

Sími: 525 4400
Fax: 525 4410
Netfang: hug@hi.is

Verkefnastjóri deildar: Jóhanna María Vilhelmsdóttir, sími 525 4354, jmv2@hi.is
Verkefnastjóri framhaldsnáms: María Gestsdóttir, sími 525 4401, mariage@hi.is 
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, sími: 525 4262, gb@hi.is

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí. 

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs