Vormisseri 2013
- 7.-8. janúar. Sjúkrapróf - próf frá síðari hluta próftímabils haustmisserisprófa.
- 14. janúar. Kennsla vormisseris hefst.
- 15. janúar. Skiladagur meistaraprófsritgerða.
- 20. janúar. Skiladagur BA ritgerða.
- 21. janúar. Síðasti dagur til að endurskoða námskeiðaskráningu á vormisseri 2013.
- 29. janúar. Próftafla vormisserisprófa birt.
- 1. febrúar. Eindagi einkunnaskila vegna brautskráningar 23. febrúar.
- 1. febrúar. Umsóknarfrestur erlendra nemenda um grunn- og framhaldsnám rennur út.
- 23. febrúar. Brautskráning kandídata.
- 25. febrúar-1. mars. Kennsluhlé.
- 11. mars-3. apríl. Skráning í námskeið á haust- og vormisseri 2013-2014 (árleg skráning).
- 27. mars- 2. apríl. Páskaleyfi (báðir dagar meðtaldir).
- 3. apríl. Síðasti dagur til að sækja um sértæk úrræði í námi hjá Náms- og starfsráðgjöf HÍ.
- 15. apríl. Umsóknarfrestur um meistara- og doktorsnám sem hefst á haustmisseri 2013 rennur út.
- 19. apríl. Kennslu vormisseris lýkur.
- 24. apríl-10. maí. Vormisserispróf.
- 5. maí. Skiladagur meistaraprófsritgerða.
- 10. maí. Skiladagur BA ritgerða.
- 21.-24. maí. Sjúkrapróf vegna vormisserisprófa.
- 31. maí. Eindagi einkunnaskila vegna brautskráningar 22. júní.
- 3.-7. júní. Sérstök endurtökupróf haust- og vormisseris.
- 5. júní. Umsóknarfrestur um grunnnám við HÍ rennur út.
- 22. júní. Brautskráning kandídata.
Sjá nánar í kennslualmanaki Háskóla Íslands.
Kennsluhlé
Páskaleyfi er frá miðvikudegi fyrir skírdag til þriðja í páskum. Upphafs- og lokadagur hvors leyfis telst með. Auk þessara leyfa er kennsluhlé sumardaginn fyrsta, 1. maí og 1. desember.
Mikilvægi skráningar
Skipulag náms í Háskóla Íslands byggir á skráningu stúdenta í námskeið og próf. Hver stúdent ber ábyrgð á námi sínu. Stúdentar þurfa því að gæta vel að reglum um skráningu og auglýst skráningartímabil. Því betur sem þeir sinna þessum skyldum sínum, þeim mun betri þjónustu geta þeir vænst að fá.
Skiladagar lokaritgerða:
BA ritgerðir:
- Haustmisseri: 20. janúar.
- Vormisseri: 10. maí
- Sumarmisseri: 10. september
Meistararitgerðir:
- 15. janúar vegna brautskráningar í febrúar.
- 5. maí vegna brautskráningar í júní.
- 5. september vegna brautskráningar í október.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

