Umsóknarferli þegar sótt er um þverfaglegt meistaranám í heilbrigðisvísindum.
- Umsóknarfestur um nám á haustmisseri er 15. apríl.
- Þegar sótt er um námið er æskilegt að umsækjandi hafi ákveðna hugmynd að rannsóknarverkefni og hafi rætt við væntanlegan leiðbeinanda. Ef sú er ekki raunin má nýta fyrstu önnina í náminu til þess að taka skyldunámskeið á meðan leitað er að heppilegu verkefni, en nemanda ber að taka námskeið í aðferðafræði, tölfræði og siðfræði hafi hann ekki gert það áður. Nemandi skal hafa samráð við deild um val á þessum námskeiðum.
- Þegar sótt er um þarf umsækjandi að velja sér deild (kjörsvið) innan Heilbrigðisvísindasviðs og því gott að hafa kynnt sér vel námskeiðin sem þar eru kennd.
- Umsækjandi sendir inn rafræna umsókn um framhaldsnám. Rafræn gögn sem fylgja skulu umsókn eru eftirfarandi:
- Greinargerð um námsmarkmið og áhugasvið umsækjanda.
- Náms- og starfsferilsskrá.
- Nöfn tveggja meðmælenda, netföng og símanúmer. Ef meðmælandi er utan deildar þarf að senda inn meðmælabréf. Deildir geta vikið frá þessari reglu.
- Staðfest afrit af prófskírteini, hafi umsækjandi lokið BS-prófi frá öðrum háskóla en Háskóla Íslands.
- Nafn fyrirhugaðs umsjónarkennara, þegar það á við.
- Umsækjandi gæti þurft að senda inn viðbótargögn og fer það eftir inntökuskilyrðum í deildina sem hann velur.