Yfir 60 prósent Rannís-styrkja til HÍ

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur lokið við úthlutun til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2011 en um 241 milljón króna var úthlutað. Verkefnið Innviðir eldfjalla, sem Freysteinn Sigmundsson sérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands leiðir, hlýtur Öndvegisstyrk Rannís að þessu sinni. Rannsóknin er fjölþjóðleg og er styrkt um hartnær 25 milljónir króna (24.992.000) en sú fjárhæð er fyrir fyrsta árið í þriggja ára verkefni.

Verkefnið Innviðir eldfjalla er það eina sem hlýtur Öndvegisstyrk í ár. 

Yfirgnæfandi fjöldi verkefnisstjóra kemur frá Háskóla Íslands í styrktum rannsóknum Rannís að þessu sinni, eða 23 talsins sem samsvarar 62,2 prósentum. Styrkveitingarnar bera vitni um afar góðan árangur Háskóla Íslands. 

Freysteinn Sigmundsson vakti þjóðarathygli fyrr í vetur þegar jarðvísindamenn við Háskóla Íslands, og samstarfsaðilar á Veðurstofu Íslands og við erlenda háskóla, skrifuðu forsíðugrein í Nature, eitt virtasta vísindatímarit heims. Í greininni er fjallað um aðdraganda eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli en rannsóknin var leidd af Freysteini. 

Aðrir umsækjendur með Freysteini í verkefninu Innviðir eldfjalla eru: Kristín Vogfjörð (Veðurstofa Íslands), Olgeir Sigmarsson (CNRS/Háskóli Íslands), Þóra Árnadóttir (Háskóli Íslands), Sigrún Hreinsdóttir (Háskóli Íslands), Björn Lund (Uppsala universitet), Ólafur Guðmundsson (Háskólinn í Reykjavík), Ari Tryggvason (Uppsala universitet), Andy Hooper, (Delft University), Erik Sturkell  (Göteborgs universitet), Peter C. LaFemina (Penn State University), Kurt Feigl (University of Wisconsin-Madison), Virginie Pinel (LGIT-Université de Savoie), Matthew J. Roberts (Veðurstofa Íslands), Einar Kjartansson (Veðurstofa Íslands) og Kristín Jónsdóttir (University College Dublin). 

Þá hlaut Háskóli Íslands einn rannsóknastöðustyrk. Arna Hauksdóttir, sérfræðingur á Heilbrigðisvísindasviði HÍ fær 7.190.000 kr. til þriggja ára fyrir verkefnið: Áhrif efnahagshrunsins á heilsufar Íslendinga.  Að auki voru veittir sérstakir verkefnastyrkir og eru þeir taldir upp hér á eftir með hliðsjón af flokkun Rannís. (Fjárhæðin sem nefnd er við hverja rannsókn hér á eftir er aðeins fyrir fyrsta árið í þriggja ára verkefni):

Verkefnastyrkir: Verkfræði, tæknivísindi og raunvísindi

Hafliði Pétur Gíslason, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hlýtur 6.040,000 kr. styrk til 3 ára fyrir verkefnið: Geislavirkar veilur í hálfleiðurum.  Aðrir umsækjendur eru: Haraldur Páll Gunnlaugsson (Aarhus Universitet) og Sveinn Ólafsson (Háskóli Íslands).

Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands og prófessor í rafmagnsverkfræði, er verkefnisstjóri í verkefninu: Skynjun á breytingum með fjarkönnun. Það hlýtur 5.700.000 kr. til þriggja ára. Aðrir umsækjendur eru: Prashanth Reddy Marpu (Háskóla Íslands) og Kolbeinn Arnarson (Landmælingum Íslands).

Kristján Leósson, vísindamaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, er verkefnastjóri í verkefninu Ljósmögnun rafgasbylgna. Það hlýtur 6.040.000 kr. til þriggja ára. Aðrir umsækjendur eru: Alexandra Boltasseva (Danmarks Tekniske Universitet) og Malte C. Gather (Harvard University).

Snorri Þór Sigurðsson, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands, hlýtur styrk fyrir verkefnið: Spunamerking kjarnsýra án samgildra tengja. Það hlýtur 6.500.000 kr. til næstu þriggja ára. 

Viðar Guðmundsson, prófessor hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, hlýtur styrk fyrir verkefnið:  Ljós og leiðni í rafeindakerfum á nanóskala. Það hlýtur 4.905.000 kr. til næstu þriggja ára. 

Verkefnastyrkir: Náttúruvísindi og umhverfisvísindi

Andri Stefánsson, dósent við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, hlýtur styrk fyrir verkefnið: Jarðefnafræði CO2 í jarðhitavatni. Fjárhæðin er  6.214.000 kr. til þriggja ára. Aðrir umsækjendur eru: Jacques Schott (Université of Toulouse) og Pascale Bénézeth (Université of Toulouse).

Verkefni sem Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands leiðir, hlýtur styrk til þriggja ára að fjárhæð 7.625.000 kr. Verkefnið nefnist: Fjölbreytni plöntusamfélaga: áhrif tegundaauðgi, beitarálags og frjósemi á fjölbreytni í landslagi.

Aðrir umsækjendur eru:  Þóra Ellen Þórhallsdóttir (Háskóli Íslands), Anne Bråthen (Universitetet i Tromsø), Virve T. Ravolainen (Universitetet i Tromsø), Nigel Yoccoz (Universitetet i Tromsø) og Starri Heiðmarsson (Náttúrufræðistofnun Íslands).

Verkefni sem Jörundur Svavarsson, prófessor við Líffræðistofnun Háskóla Íslands leiðir, fær 8.200.000 kr. styrk til næstu þriggja ára. Verkefnið heitir Þróun aðferða við mat á stofnstærð botndýra með hjálp sjálfvirks kafbáts (AUV). Aðrir umsækjendur eru Gunnar Stefánsson (Háskóli Íslands), Tómas Philip Rúnarsson (Háskóli Íslands) og Erla Björk Örnólfsdóttir (Vör v/Breiðafjörð).

Verkefnið Myndun jökulalda við Múlajökul, sem Ólafur Ingólfsson prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands leiðir, hlýtur styrk upp á 7.490.000 kr. til næstu þriggja ára. Meðumsækjandi er Anders Schomacker (Norges Teknisk-Naturvidenskaplige Universitet).

Verkefnastyrkir: Heilbrigðisvísindi og lífvísindi

Verkefnið: Stjórnun á virkni umritunarþáttarins MITF í litfrumum og sortuæxlum hlýtur styrk til þriggja ára að fjárhæð 7.550.000 kr. Verkefnið leiðir Eiríkur Steingrímsson prófessor í sameindalíffræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Aðrir umsækjendur eru: Lars Rönnstrand  (Malmö University Hospital) og Lionel Larue (Institut Curie). 

Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í frumulíffræði við Háskóla Íslands, leiðir verkefnið: Örvun fremstu varnarlínu gegn sýkingum sem hlýtur styrk til þriggja ára að fjárhæð 7.000.000 kr. Aðrir umsækjendur eru Birgitta Agerberth (Karolinska Institutet) og Ólafur Baldursson (Háskóli Íslands).


Guðrún Valdimarsdóttir nýdoktor við Læknadeild Háskóla Íslands, leiðir verkefnið: TGFbeta-fjölskyldan í sérhæfingu stofnfruma úr fósturvísum manna í æðaþelsfrumur. Verkefnið er til þriggja ára og hlýtur 7.275.000 kr. styrk. Aðrir umsækjendur eru: Christine Mummery (Leiden University Medical Center), Peter ten Dijke (Leiden University Medical Center) og Marie-Jose Goumans (Leiden University Medical Center).

Ingibjörg Harðardóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Ónæmisfræðileg áhrif efna og útdrátta úr íslenskum plöntum og hvernig þau hafa áhrif. Verkefnið er til þriggja ára og hlýtur kr. 6.500.000 kr. Aðrir umsækjendur eru:  Jóna Freysdóttir (LSH) og Arnór Víkingsson (LSH).

Jórunn Erla Eyfjörð, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Áhrif BRCA2 kímlínustökkbreytingar á krabbameinsmyndun og sjúkdómsframvindu. Verkefnið er til þriggja ára og hlýtur 6.500.000 kr. styrk.  Aðrir umsækjendur eru: Steinunn Thorlacius (IRCC Institute for Cancer Research and Treatment), Jón Gunnlaugur Jónasson (LSH, Háskóli Íslands) og Sigríður Klara Böðvarsdóttir (Háskóli Íslands).


Sesselja Ómarsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Lyfjavirk efni úr íslenskum sjávarhryggleysingjum en það hlýtur 6.137.000 kr. styrk til þriggja ára. Aðrir umsækjendur eru Tadeusz Franciszek Molinski (Kaliforníuháskóli (San Diego)), Elín S. Ólafsdóttir (Háskóli Íslands) og Jörundur Svavarsson (Háskóli Íslands).

Verkefnastyrkir: Félagsvísindi og hugvísindi

Erlingur Jóhannsson, prófessor við Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Líkamlegt atgervi, félagslegir þættir og andleg líðan unglinga og ungmenna, sem hlýtur 6.830.000 kr. styrk til þriggja ára.

Aðrir umsækjendur eru: Sigurbjörn Á. Arngrímsson (Háskóli Íslands), Þórarinn Sveinsson (Háskóli Íslands), Þóroddur Bjarnason (Háskólinn á Akureyri), Ársæll Már Arnarson (Háskólinn á Akureyri) og Kristján Þór Magnússon (Háskóli Íslands).

Indriði H. Indriðason frá Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Þingræði, stjórnsamsteypustjórna og stefnumótun en verkefnið hlýtur styrk til þriggja ára að fjárhæð 3.392.000 kr. Meðumsækjandi er Gunnar Helgi Kristinsson (Háskóli Íslands).

Orri Vésteinsson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands fær styrk fyrir verkefnið: Gröf og dauði á Íslandi í 1150 ár. Aðrir umsækjendur eru Adolf Friðriksson (Fornleifastofnun Íslands) og Jette Arneborg (Nationalmuseet).  Styrkur er til þriggja ára að fjárhæð 5.000.000 kr.

Svanhildur Óskarsdóttir, við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, leiðir verkefnið: Breytileiki Njálssögu. Verkefnið er til þriggja ára og fær 6.660.000 kr. í styrk. Aðrir umsækjendur eru: Haraldur Bernharðsson (Stofnun Árna Magnússonar), Margrét Eggertsdóttir (Stofnun Árna Magnússonar), Sveinn Yngvi Egilsson (Háskóli Íslands), Emily Lethbridge (University of Cambridge) og Ludger Zeevaert (University of Liége).

Sverrir Jakobsson, aðjunkt við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Saga Breiðafjarðar, sem er styrkt til þriggja ára um 6.469.000 kr.  Aðrir umsækjendur eru Helgi Þorláksson (Háskóli Íslands) og Oddný G. Sverrisdóttir (Háskóli Íslands).

Terry Gunnell, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands leiðir verkefnið: Menningarsköpun: Fræðilegir áhrifavaldar, uppsprettur innblástrar og langtímaáhrif menningarsköpunar Sigurðar málara og Kvöldfélagsmanna 1857-1874.

Aðrir umsækjendur eru  Karl Aspelund (University of Rhode Island), Sigurjón B. Hafsteinsson (Háskóli Íslands), Sveinn Yngvi Egilsson (Háskóli Íslands) og Sveinn Einarsson (sjálfstætt starfandi). Verkefnið fær 5.659.000 til næstu þriggja ára.

Eins og áður sagði kemur yfirgnæfandi fjöldi verkefnisstjóra frá Háskóla Íslands í styrktum rannsóknum Rannís í ár eða 62,2 prósent. En að auki eru þátttakendur frá Háskóla Íslands í mörgum verkefnum sem leidd eru af öðrum en vísindamönnum Háskóla Íslands.  Aðrir verkefnisstjórar koma frá eftirfarandi rannsóknaraðilum: 4 eða 10,8% frá Háskólanum í Reykjavík, 3 eða 8,1% frá rannsóknarstofnunum, 2 eða 5,4% frá Matís ohf., 2 eða 5,4% frá Landspítala‐háskólasjúkrahúsi og 3 eða 8,1% frá fyrirtækjum. 

Heildarfjöldi verkefnisstjóra er 37. Þrír eru í rannsóknastöðustyrkjum, 33 í verkefnastyrkjum og einn í öndvegisstyrkjum, Freysteinn Sigmundsson sérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.

deila á facebook