Félagsráðgjafardeild tók að venju þátt í Vísindavöku RANNÍS sem haldin var fyrr í mánuðnum. Þar voru kennarar í félagsráðgjöf og nemendur í starfsréttindanámi í forsvari fræðigreinina.
Líf og fjör var í kynningarbásnum en kynnt voru ýmis tæki og tól sem notuð eru í félagsráðgjöf, þar fengu viðstaddir m.a. að skoða myndræna framsetningu á úrlausn vandamála og vakti það oft mikla kátínu meðal yngri kynslóðarinnar - sumir vilja ganga í burtu, aðrir vilja hugsa málin og enn aðrir vilja ræða þau strax. Einnig var hægt að skoða fjölskyldukort og velta fyrir sér tengslum innan fjölskyldna.Auk þessa voru sýnd myndbönd af nemendum á 4. ári í starfsréttindanámi að læra viðtalstækni.
Þá voru einnig kynntar ýmsar rannsóknir í félagsráðgjöf og starfsemi RBF kynnt sérstaklega.
