Vísindasmiðja Háskóla Íslands var opnuð í dag með formlegum hætti í vesturenda Háskólabíós. Fjölmargir gestir voru viðstaddir opnunina, þar á meðal Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar hjá Orkuveitur Reykjavíkur, og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra sem opnaði smiðjuna á táknrænan hátt með því að stíga á svokallað orkureiðhjól sem knýr ljósaperur. Því má með sanni segja að ráðherra hafi með táknrænum hætti kveikt á perunni.
Í Háskólabíói var margt um manninn þennan dag því auk opnunar Vísindasmiðjunnar kynntu ýmsir háskólar starfsemi sína. Þá var hið sívinsæla Sprengjugengi Háskóla Íslands, hópur efnafræðinema sem sannarlega hefur aukið hróður raunvísindanna, með sýningar og boðið var upp á vísindabíó. Á öllu háskólasvæðinu var að auki mikið um að vera á Háskóladeginum í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, Háskólatorgi, Öskju og Norræna húsinu.
Markmið og samstarf við skóla
Markmið Vísindasmiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á undrum vísindanna með gagnvirkum og lifandi hætti og styðja við framþróun kennslu náttúru- og raunvísinda á öllum skólastigum. Í Vísindasmiðjunni kynnast gestir m.a. hugtökum og lögmálum vísindanna með upplifun og leik og opna þannig undraheim vísindanna.
Vísindasmiðjan verður starfrækt í nánum tengslum við öll skólastig landsins. Þar verða skólahópar velkomnir og einnig verður í boði endurmenntunar- og fræðslustarf fyrir kennara.
Áætlað er að taka á móti fyrstu skólahópum 1. mars 2012. Kennarar og nemendur við Háskóla Íslands munu sinna leiðsögn og kennslu við Vísindasmiðjuna.
Rafheimar lögðu grunninn
Opnun Vísindasmiðjunnar fylgdi vegleg gjöf frá Orkuveitu Reykjavíkur, sem afhendir Vísindasmiðju Háskóla Íslands allan búnað og þau tæki sem áður tilheyrðu Rafheimum í Elliðaárdal og notaður var til fræðslu skólabarna. Háskóli Íslands tók við gjöf Orkuveitunnar með fyrirheit um að búnaður og tæki yrði notað áfram til fræðslu ungmenna og yrðu hvati að fjölbreyttum og lifandi kennsluaðferðum.
Í Rafheimum fór fram öflugt og gefandi fræðslustarf í rúman áratug, allt frá árinu 1998. Sóttu tugir þúsunda grunnskólabarna í Elliðaárdalinn örvun og eflingu til dáða á sviði náttúru- og raunvísinda. Í röðum nemenda Háskóla Íslands er mörgum enn minnisstæð heimsóknin í Rafheima á sínum yngri árum og einhverjir þeirra verða jafnvel leiðbeinendur í Vísindasmiðju Háskóla Íslands í framtíðinni.
Endurmenntun kennara
Í Vísindasmiðjunni munu kennarar við Háskóla Íslands einnig standa fyrir endurmenntunarnámskeiðum fyrir raungreinakennara í grunnskólum. Ætlunin er því að efla og þróa náttúru- og raungreinakennslu en margsinnis hefur verið bent á nauðsyn þess að fjölga raungreinamenntuðu fólki á íslenskum vinnumarkaði.
Sameiginleg hugsjón OR og HÍ
Samstarf Orkuveitunnar og Háskóla Íslands á sviði fræðslu til ungmenna á sér forsögu. Hún hófst formlega með stofnun Undirbúningsfélags að Tilraunahúsi árið 2006. Allt frá því hafa báðir aðilar unnið ötullega að því að ná settu marki: að koma á fót lifandi vísindasetri fyrir nemendur og kennara en stefnt er því innan tíðar að hafa einnig opið við sérstök tækifæri fyrir fjölskyldur og alla áhugasama.
Það er Háskóla Íslands mikil ánægja og heiður að taka við næsta áfanga á vegi þessa mikilvæga fræðslu- og hvatningarstarfs. Byrjað verður smátt, í 150 fermetra fyrrum skrifstofuhúsnæði, en hugsað verður stórt og til framtíðar. Háskólabíó er í raun kjörið fyrir þessa starfsemi, möguleikar til stækkunar fyrir hendi og staðsetning alveg kjörin fyrir skólahópa sem ferðast milli staða í strætisvögnum. Minnst fjórar strætisvagnaleiðir eru á næsta leiti.
Vísindasmiðjan markar nýjan áfanga í þessu gefandi samstarfi og er það einlæg von Háskóla Íslands að Orkuveita Reykjavíkur komi að starfseminni með virkum hætti á komandi árum.
Vísindamiðlun til ungs fólks er meðal áherslumála Háskóla Íslands
Háskóli Íslands leggur áherslu á að glæða áhuga ungs fólks á vísindum og fræðum og hefur því staðið fyrir ýmiss konar fræðslu . Má þar nefna Háskóla ungs fólksins, Vísindavefinn, Háskólalestina og Tilraunalandið sem starfrækt var í samstarfi við Norræna húsið. Það er mikið tilhlökkunarefni að enn fleiri ungir Íslendingar heimsæki nú háskólasvæðið og býður Háskóli Íslands þá hjartanlega velkomna.
