Skip to main content
26. september 2016

Viltu vinna tvær milljónir?

""

Leit er hafin innan Háskóla Íslands að hagnýtanlegum hugmyndum frá starfsmönnum eða nemendum fyrir Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands sem verða veitt í 18. sinn þann 17. nóvember næstkomandi. Verðlaunafé nemur samtals 3,5 milljónum króna.

Starfsmenn og nemendur af öllum fræðasviðum skólans og tengdum stofnunum eru hvattir til að taka þátt í samkeppninni enda sýnir reynslan að hagnýta má fleira en tæknilegar lausnir í iðnaði. 

Peningaverðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í keppninni. Tvær milljónir króna koma í hlut verkefnisins sem verður í fyrsta sæti, verkefnið í öðru sæti fær eina milljón króna og 500 þúsund krónur eru veittar fyrir verkefnið sem hafnar í þriðja sæti. 

Frestur til að skila inn tillögum í samkeppnina rennur út 27. október nk.

Sérstök dómnefnd metur hugmyndir sem berast í keppnina en við valið skoðar hún m.a.:

i) Leiðir við hagnýtingu og hversu fljótt er unnt að hagnýta uppfinningu

ii) Hvort hagnýting styðji við stefnu og starfsemi Háskóla Íslands

iii) Rannsóknavinnu að baki verkefni/hugmynd

iv) Nýnæmi og frumleika

v) Ávinning fyrir samfélagið

vi) Hvernig verðlaunafé mun nýtast við hagnýtingu verkefnis/hugmyndar

Þeim sem hafa áhuga á að vera með í samkeppninni býðst að taka þátt í vinnustofu um hagnýtingu hugmynda  í akademísku umhverfi mánudaginn 10. október kl. 16-18. Vinnustofan er þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning fer fram í gegnum netfangið gydae@hi.is fyrir lok dags 5. október.

Á heimasíðu verðlaunanna má enn fremur finna ýmsar upplýsingar um Hagnýtingarverðlaun skólans, þar á meðal verklagsreglur um samkeppnina, yfirlit yfir fyrri verðlaunahafa og umsóknareyðublað.

Tillögum má skila rafrænt á póstfangið gydae@hi.is eða skriflega til umsjónarmanns samkeppninnar, Gyðu Einarsdóttur, vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands (s. 525-5488). Gyða aðstoðar jafnframt umsækjendur og veitir nánari upplýsingar.

Samkeppnin um Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands er samstarfsverkefni háskólans, Árnason|Faktor og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Nemendur að störfum