Heimasíða UNESCO birti nýverið viðtal við Vigdísi Finnbogadóttir, velgjörðarsendiherra UNESCO í tungumálum, sem vakið hefur talsverða athygli víða um heim. Viðtalinu er slegið upp á aðalsíðu stofnunarinnar og birtist í heild sinni í menntunarhluta heimasíðunnar. Þar ræðir Vigdís um hvernig krafturinn sem býr í konum geti orðið til þess að bjarga heiminum og því sé mikilvægt að konur um allan heim læri að lesa og fái tækifæri til að mennta sig. Hún segir feður og bræður eiga að taka höndum saman með konum til að tryggja betri framtíð og stuðla að jafnrétti.
Hún talar líka um sjálfbæra þróun og framtíð jarðar, þátttöku kvenna í stjórnmálum og leiðtogaþjálfun kvenna. Viðtalið má lesa hér á heimasíðu UNESCO. Viðtalið var tekið í kjölfar þess að Vigdís var einn lykilfyrirlesara á ráðstefnu UNESCO í París sem nefndist "Girls' and Women's Education: The Way Forward".
