Viðurkenning endurskoðendaráðs á meistaranámi í reikningshaldi og endurskoðun
Þann 6. júlí barst Háskóla Íslands bréf frá endurskoðendaráði þess efnis að meistaranám í Háskóla Íslands í reikningshaldi og endurskoðun sé viðurkennt sbr. 4. tölul. 2. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur.
Þann 1. janúar 2009 tóku gildi ný lög um endurskoðendur nr. 79/2009. Með lögunum voru gerðar töluverðar breytingar á lagaumhverfi endurskoðenda og skilyrðum til þess að öðlast réttindi með löggildingu til endurskoðunarstarfa breytt. Í 4. tölul. 2. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur, er kveðið á um að til þess að öðlast löggildingu þurfi viðkomandi einstaklingur að hafa lokið meistaranámi í endurskoðun og reikningsskilum sem viðurkennt er af endurskoðendaráði.
Með bréfi sínu þann 27. ágúst 2009 óskaði endurskoðendaráð eftir upplýsingum um nám í endurskoðun og reikningsskilum á meistarastigi við Háskóla Íslands svo að endurskoðendaráð gæti skorið úr um hvort námið uppfylli skilyrði laga og veitt því viðurkenningu. Með bréfi dagsettu 26. október 2009 bárust gögn frá Háskóla Íslands með upplýsingum um meistaranám í endurskoðun og reikningsskilum sem boðið er upp á í Háskóla Íslands.
Endurskoðendaráð hefur kannað hvort nám á meistarastigi í endurskoðun og reikningsskilum við Háskóla Íslands uppfylli kröfur sem gerðar eru um fræðilega kennslu sem er grunnur að prófi í endurskoðun. Til hliðsjónar voru hafðar kröfur sem koma fram í 8. gr. áttundu tilskipunar Evrópusambandsins og kröfur í 2. málsgr. 3. gr. reglugerðar nr. 589/2009, um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa, sem endurspegla umræddar kröfur í áttundu tilskipun.
10.8.2010 13:25




