Skip to main content
8. maí 2016

Viðamikil rannsókn á líðan leik- og grunnskólabarna

""

Umfangsmikil rannsókn á hegðun og líðan leik- og grunnskólabarna fer nú fram við Sálfræðideild Háskóla Íslands. Um er að ræða langtímarannsókn á tengslum tilfinningastjórnunar, hegðunar og líðanar íslenskra barna. Fæðingarárgangnum 2010 á höfuðborgarsvæðinu verður fylgt eftir í þrjú ár, frá leikskóla upp í 2. bekk grunnskóla. 

Markmið rannsóknarinnar er að kortleggja frávik í tilfinningastjórnun, hegðun og líðan barnanna og fylgjast með þróun þeirra frá 5 til 8 ára. Þetta er ein fyrsta langtímarannsókn í heiminum þar sem frávik í tilfinningastjórnun í tengslum við þróun hegðunarvanda og ADHD eru skoðuð með þessum hætti. Meðal barna á aldrinum 5 til 8 ára er algengt að hegðunarvandi komi fram í skólanum og jafnframt virðist þetta aldursbil vera sérstaklega viðkvæmt hvað varðar upphaf fylgiraskana ADHD. Rannsóknin mun veita mikilvægar upplýsingar um þróun ýmissa kvilla hjá börnum á þessum aldri sem munu nýtast við þróun forvarnar- og meðferðarúrræða. 

Rannsóknin fer þannig fram að foreldrar og kennarar barnanna svara nokkrum rafrænum spurningalistum einu sinni á ári í þrjú ár. Þeim börnum sem mælast með frávik í hegðun eða líðan í 1. eða 2. bekk verður boðið upp á nánara mat sem felur í sér ítarlegt greiningarviðtal við foreldra og í einhverjum tilvikum verður lagt greindarpróf fyrir barnið. Til að auka áreiðanleika niðurstaðna er mikilvægt að fá sem flesta þátttakendur og eru veglegir happdrættisvinningar í boði fyrir þá sem taka þátt. 

Ávinningur rannsóknarinnar verður talsverður þar sem ekki aðeins er um að ræða mikilvægar upplýsingar um hegðun og líðan leik- og grunnskólabarna heldur fá börnin, sem verða með, ítarlegt mat á hugsanlegum vanda, jafnvel fyrr en ella enda vel þekkt að biðlistar eftir slíkri þjónustu eru langir hérlendis.

Rannsókn af þessu tagi hefur ekki áður verið gerð hér á landi. Hún hófst nýlega og er unnin í samvinnu við öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í henni eru hvattir til að fylgjast vel með kynningarbréfi sem leikskólar senda á foreldra, en búið er að hafa samband við alla leikskóla í Reykjavík, Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir um rannsóknina á Guðlaugu Marion Mitchison á netfangið gmm1@hi.is

Skólatöskur
Skólatöskur