Vettvangsnám meistaranemenda

Þann 1. september voru undirritaðir fyrstu samningarnir sem Félags- og mannvísindadeild gerir vegna vettvangsnáms meistaranemenda í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands en nýtt námsskipulag tók gildi á síðasta kennsluári.

Hér má sjá Ólaf Þ. Harðarson, forseta Félagsvísindasviðs, Gissur Pétursson, forstjóra Vinnumálastofnunar, Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóra Keilis, Huldu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Mímis, og Ómar Örn Magnússon aðstoðarskólastjóra Hagaskóla ganga frá undirritun.

deila á facebook