Skip to main content
20. september 2016

Verkefni meistaranema kynnt á málþingi í vikunni

""

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands föstudaginn 23. september nk. frá kl. 9:30-15:30. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í október flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum.

Hátt í þrjátíu erindi í níu málstofum verða flutt á málþinginu og eru viðfangsefnin af ýmsum toga. Meðal þess sem fjallað verður um er bakgrunnur textílkennara, forvarnir og viðbrögð gegn einelti, heilsurækt eldri borgara, kennsluaðferð í tungumálanámi, lífssögur karla með þroskahömlun, orðmyndun á samfélagsmiðlum og margt fleira. Flutt verða erindi bæði á íslensku og ensku. 

Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið. 

Dagskrá málþingsins og upplýsingar um einstaka málstofur má finna á vef Háskóla Íslands.

Stakkahlíð
Stakkahlíð