Skip to main content
24. janúar 2017

Verið velkomin á Heilsutorg í febrúar

Opnað hefur verið fyrir bókanir á Heilsutorgi fyrir lok janúar og febrúar 2017. Hægt verður að fá tíma á þriðjudögum og fimmtudögum.

Heilsutorg er heilbrigðismóttaka fyrir nemendur Háskóla Íslands. Þjónustan á Heilsutorgi er veitt af nemendum í framhaldsnámi á Heilbrigðisvísindasviði undir handleiðslu leiðbeinenda. Nemendurnir vinna saman í litlum hópum með þeim sem sækir þjónustuna og í sameiningu greina þau vandann og gera meðferðaráætlun. 

Heilsutorg er staðsett á Heilsugæslunni í Glæsibæ, Álfheimum 74.

Nánari upplýsingar og tímapantanir fara fram á heimasíðu Heilsutorgs.