Skip to main content
27. júní 2016

Verðlaunuð fyrir námsárangur í eðlisfræði og efnafræði

""

Tveir nemendur sem útskrifuðust úr grunnnámi með BS-gráðu í eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands háskólaárið 2015-2016 hljóta verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi fimmtudaginn 23. júní. Nemendurnir eiga það sameiginlegt að hafa náð afburðaárangri í BS-námi sínu við Raunvísindadeild skólans og fengu háa ágætiseinkunn fyrir vikið.

Verðlaunaféð nemur tveimur milljónum króna og eru þetta með veglegustu verðlaunum sem útskriftarnemum eru veitt hér á landi.

Stefán Alexis Sigurðsson hlýtur eina milljón króna fyrir námsárangur í eðlisfræði með ágætiseinkunn 9,59. Hann hefur þegar hafið doktorsnám í læknisfræðilegri verkfræði við Brown-háskólann í Bandaríkjunum.

Anna Bergljót Gunnarsdóttir hlýtur eina milljón króna fyrir námsárangur í efnafræði með ágætiseinkunn 9,26. Hún mun hefja doktorsnám í efnafræði fastra efna við Cambridge-háskóla á Englandi í haust. Anna Bergljót lauk einnig BS-gráðu í verkfræðilegri eðlisfræði með ágætiseinkunn 9,25.

Átti ekki kost á að stunda háskólanám

Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi var stofnaður árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar til Háskóla Íslands. Guðmundur fæddist á Sýruparti á Akranesi árið 1909 og bjó um árabil á Höfða, dvalarheimili aldraðra á Akranesi. Hann lést í febrúarmánuði 2006 í hárri elli. Guðmundur átti þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði sem netagerðarmaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður sinn. Guðmundur var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness árið 1933.

Ljóst er að hlutfallslega færri nemendur sækja háskólanám í eðlis- og efnafræði á Íslandi en í samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guðmundar við háskólanemendur í eðlis- og efnafræði er því mikilvægt lóð á þá vogarskál að hvetja unga Íslendinga að sækja nám í þessum greinum.

Stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi skipa Guðmundur G. Haraldsson, prófessor í efnafræði, sem er formaður, Hafliði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og Eiríkur Dór Jónsson, fulltrúi Arion banka sem er vörsluaðili sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá.

Sigurður Harðarson og Anna Bergljót Gunnarsdóttir
Hafliði Pétur Gíslason, Jón Atli Benediktsson, Sigurður Harðarson, Anna Bergljót Gunnarsdóttir, Guðmundur Haraldsson og Eiríkur Dór Jónsson.
Verðlaunahafinn Stefán Alexis Sigurðsson fylgdist með athöfninni í gegnum síma föður síns.