Skip to main content
22. desember 2016

Verðlaunuð fyrir afburðaárangur í verkfræði við HÍ

""

Þjóðbjörg Eiríksdóttir, BS-nemi í rafmagns- og tölvuverkfræði, hefur hlotið styrk úr Minningarsjóði Þorvalds Finnbogasonar stúdents. Vigdís Finnbogadóttir, systir Þorvalds, afhenti styrkinn við hátíðlega athöfn á Litla torgi Háskólatorgs í gær, miðvikudaginn 21. desember.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega nema í verkfræði við Háskóla Íslands til framhaldsnáms í verkfræði. Nemandi, sem er með hæstu meðaleinkunn eftir annað ár í grunnnámi, hlýtur styrkinn hverju sinni. 

Þjóðbjörg Eiríksdóttir er frá Gýgjarhólskoti 1 í Biskupstungum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni vorið 2014 og hóf þá um haustið BS-nám í rafmagns- og tölvuverkfræði. Þjóðbjörg hlaut styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands vorið 2014.

Minningarsjóður Þorvalds Finnbogasonar stúdents var stofnaður af foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fyrrverandi forseta verkfræðideildar Háskóla Íslands. 

Árlega er veitt viðurkenning úr sjóðnum til afburðanemanda í verkfræði við Háskóla Íslands en sjóðurinn var stofnaður á 21 árs afmæli Þorvalds, þann 21. desember 1952.

Þjóðbjörg Eiríksdóttir ásamt Vigdísi Finnbogadóttur við afhendingu styrksins á Háskólatorgi í gær.
Þjóðbjörg Eiríksdóttir verðlaunahafi ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, og Hilmari Braga Janussyni, forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.