Skip to main content
29. ágúst 2016

Verðlaun til nemenda á fyrsta ári

""

Viðskiptafræðideild veitir verðlaun til þriggja nemenda, sem hljóta hæstu meðaleinkunn að loknum prófum á 1. námsári 2016–2017. Verðlaunahafar þurfa að hafa lokið 30 einingum á hvoru misseri, alls 60 einingum á skólaárinu 2016–2017.

Eingöngu námskeið, sem tekin eru í dagskóla, eru gjaldgeng og í útreikningi á meðaleinkunn gilda eingöngu próf sem tekin eru í fyrsta sinn í hverju námskeiði.

Einkunnir í sjúkraprófum gilda en ekki í endurtökuprófum. Verðlaunahafar komast á forsetalista Viðskiptafræðideildar, sem birtur verður á heimasíðu deildarinnar. Verðlaunin verða veitt í júní 2017.

Nemendur að störfum
Nemendur að störfum