Verðlaun í textasamkeppni

Aðalheiður Guðmundsdóttir hlaut fyrstu verðlaun í textasamkeppni Hugvísindasviðs Áttu orð, sem efnt var til í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands. Úrslit voru tilkynnt í dag, laugardaginn 19. mars, í Kringlunni þar sem sýning hefur staðið yfir í rúma viku á 25 bestu textunum að mati dómnefndar.

Aðalheiður er aðjúnkt í þjóðfræði á Félagsvísindasviði og er með doktorspróf í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands. Hún átti tvo af þeim 25 textum sem voru valdir til sýningar. Í fyrstu verðlaun var glæsilegur bókapakki frá Opnu.

Önnur verðlaun hlaut Eiríkur Gauti Kristjánsson, meistaranemi í tungutækni, fyrir ljóðið Kreppufrétt en gestir Kringlunnar greiddu því flest atkvæði. Eiríkur fékk Stóru orðabókina um íslenska málnotkun í verðlaun, en Forlagið og Bóksala stúdenta gáfu þau verðlaun.

Þriðju verðlaun hlaut Þórdís Edda Jóhannesdóttir, meistaranemi í íslenskum bókmenntum, og hlaut að launum tvo árganga af Ritinu auk bókarinnar Rúnir, afmælsrit til heiðurs Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. 

Allir verðlaunahafar hlutu jafnframt áskrift að Ritinu, tímariti Hugvísindastofnunar.

Textarnir verða birtir í Hugrás, vefriti Hugvísindasviðs, á næstu dögum auk þess sem þeir verða birtir í Fréttablaðinu.

Sýningunni lýkur um helgina í Kringlunni.

deila á facebook