Fjölmenni lagði leið sína á Háskólatorg á laugardaginn var til þess að taka þátt í árlegri Japanshátíð sem sendiráð Japans á Íslandi og nemendur í japönsku máli og menningu á Hugvísindasviði stóðu fyrir.
Þetta var í áttunda sinn sem hátíðin er haldin en meðal sérstöðu hennar er að flest allt það sem gestum og gangandi er boðið upp á að skoða er unnið og fram borið af nemendum í japönsku máli og menningu við Háskóla Íslands.
Um 60 nemendur leggja nú stund á japönsku við skólann og lögðu þeir mikinn metnað í dagskrána á laugardag. Þá kom félagsskapur fólks af japönskum uppruna á Íslandi einnig að hátíðinni og stóð meðal annars fyrir japanskri teathöfn og japönskum blómaskreytingum (ikebana).
Á meðal þess sem gestir hátíðarinnar gátu kynnt sér voru japönsk tunga og dægurmenning, matargerðarlist og skrautritun og nýttu margir tækifærið og fengu nafn sitt skrautritað. Auk gátu gestir spreytt sig í karókí og á borðspilinu igo og þá vakti sýning ýmissa félaga á japönskum baradagaíþróttum mikla athygli.
Óhætt er að segja að Japanshátíðin hafi fest sig í sessi á Háskólatorgi og vitnar hún um vaxandi áhuga Íslendinga á japanskri þjóð og menningu.
Myndir frá hátíðinni er að finna hér til hliðar. Þær tók Kristinn Ingvarsson.
