Út er komið á vefnum 2. tbl. 7. árg. 2011 vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla: http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
Í ritinu eru 18 greinar, þar af 15 ritrýndar greinar og þrjár greinar almenns eðlis. Þær eru aðgengilegar á vef tímaritsins, sjá lista með beinum tenglum á greinar hér fyrir neðan.
Greinarnar eru eftir fræðimenn m.a. við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, en auk þess eru almennar greinar eftir aðila úr stjórnsýslunni og íslenskum stjórnmálum.
Að venju birtast bókadómar um nýjar bækur og eru þær 7 talsins í þessu tölublaði. Þær eru Þingræði á Íslandi, samtíð og saga eftir Ragnheiði Kristjánsdóttur ofl. ; Ríkisfang: Ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur; Ísland og ESB eftir Tómas Inga Olrich; Icesave samningarnir, afleikur aldarinnar? eftir Sigurð Má Jónsson, Á rauðum sokkum: Baráttukonur segja frá í ritstjórn Olgu Guðrúnar Árnadóttur; Þræðir valdsins: Kunningjaveldi, aðstöðubrask og hrun Íslands eftir Jóhann Hauksson og Roðinn í austri. Alþýðuflokkurinn, Komintern og kommúnistahreyfingin á Íslandi 1919-1924 eftir Snorra G. Bergsson.
Athygli er vakin á að hægt er að gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu af tímaritinu Stjórnmál og stjórnsýsla sem kemur út einu sinni á ári með ritrýndum greinum. Prentuð útgáfa 7. árg. 2011 kemur út í febrúar 2012.
Hér er hægt að gerast áskrifandi
Vefritið Stjórnmál og stjórnsýsla komið út
