Skip to main content
11. júní 2015

Varði doktorsritgerð í almennri bókmenntafræði

Ásdís Sigmundsdóttir hefur varið doktorsritgerð í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Hugvísindasviðs. Ritgerðin nefnist Building and Rebuilding the Palace of Pleasure: Translation and Rewriting in Early Modern England. Vörnin fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands mánudaginn 18. maí.

Andmælendur voru Susan Bassnett, prófessor við University of Warwick, og Andrew Hadfield, prófessor við University of Sussex. Dr. Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Íslensku- og menningardeild, var aðalleiðbeinandi doktorsverkefnisins en í doktorsnefnd sátu auk hans dr. Gottskálk Jensson og dr. Martin Regal.

Um efni ritgerðarinnar

Ritgerðin fjallar um safn þýddra nóvella sem William Painter tók saman árið 1566-1567 og nefndi Palace of Pleasure og tengsl þess við önnur verk. Hún greinir stöðu ritsafnsins í bókmenntakerfi sextándu aldar á Englandi og hvernig það var notað af höfundum í megin bókmenntategundunum þremur, prósa, ljóðlist og leikverkum.

Í rannsókninni er lögð áhersla á að kanna verkið í heild og sýna hvaða aðferðum höfundurinn beitir til að hafa áhrif á hvernig verkið er lesið og gera það gjaldgengt innan síns nýja samhengis en það kynnti nýja bókmenntagrein, nóvelluna, í Englandi. Rannsóknin greinir þá hugmyndafræðilegu strauma sem liggja verkinu til grundvallar. Sérstaklega er fjallað um hugmyndir um þjónustuhlutverkið sem átti sér margvíslegar birtingarmyndir s.s. milli stétta og kynja.

Í seinni hluta rannsóknarinnar er hugtakið endurritun notað til að kanna tengslin á milli Palace of Pleasure og frumsaminna verka sem út komu næstu áratugi á eftir. Dæmi eru tekin af prósatextum, ljóðum og leikritum og hin mismunandi sambönd milli þeirra og nóvellusafns Painters eru greind. Þessi dæmi sýna hvernig endurritanir á nóvellunum sækjast eftir því að innlima og aðlaga hugmyndir sem finna má í þeim þannig að þau eigi erindi við nýja lesendur/áhorfendur en hafna um leið hinum erlendu rótum. Í ritgerðinni eru færð rök fyrir því að þetta hafi verið mikilvægur þáttur í því verkefni að gera enskar bókmenntir miðlægari í evrópsku samhengi.

Um doktorsefnið

Ásdís Sigmundsdóttir er fædd 13. júní 1973. Hún lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og MA-prófi í enskum endurreisnar bókmenntum frá University of York 1998. Meðfram doktorsnáminu hefur Ásdís starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands. Eiginmaður Ásdísar er Stefán Baldur Árnason og eiga þau tvö börn.

Ásdís Sigmundsdóttir
Ásdís Sigmundsdóttir