Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Viðskiptafræðideild, flutti erindi undir yfirskriftinni „Um siðrof í 8. bindi Rannsóknarnefndar Alþingis“ á málstofu Viðskiptafræðideildar í dag.
Vilhjálmur byrjaði á að fjalla um siðrof sem vísar til þjóðfélagsástands, sem myndast þegar breytingar eru svo örar og þjóðfélagsástandið verður í kjölfarið svo framandi að umgengnishættir og gildi, sem almenningur hefur alist upp við, glata samhenginu við hinn félagslega veruleika. Hann fjallaði svo um starfsemi og hugsunarhátt sem var ríkjandi í íslensku útrásinni og hvernig horfið frá ríkjandi gildum og venjum um góða viðskiptahætti. Vilhjálmur benti meðal annars á að lög hefðu verið túlkuð með rýmri hætti og jafnvel skapandi hætti.
Að erindinu loknu spunnust fjörugar umræður um siðrof og siðfræði og meðal annars hvert hlutverk Háskóla Íslands væri þegar kæmi að því að viðhalda venjum og gildum í íslensku samfélagi.
