Skip to main content
26. júní 2017

Útskriftarnemar í eðlisfræði og efnafræði verðlaunaðir

Tveir nemendur sem útskrifuðust úr grunnnámi með BS-gráðu í eðlisfræði og efnafræði frá Háskóla Íslands á laugardag hljóta verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi í ár. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 22. júní. Verðlaunaféð nemur einni og hálfri milljón króna.
 

Pétur Rafn Bryde hlýtur eina milljón króna fyrir námsárangur í eðlisfræði með ágætiseinkunn 9,75. Pétur Rafn lauk BS-prófi í stærðfræði með ágætiseinkunnina 9,89. Hann er á leið í doktorsnám í hagnýttri stærðfræði við Harvard-háskóla. 

Sigtryggur Bjarki Sigtryggsson hlýtur hálfa milljón króna fyrir námsárangur í efnafræði með einkunn 8,84. Hann er á leið í doktorsnám í efnafræði við Uppsalaháskóla.

Átti ekki kost á að stunda háskólanám 
Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi var stofnaður árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar, sem hann bætti síðar tvívegis í. Hann fæddist á Sýruparti á Akranesi 1909 og bjó um árabil á Höfða, dvalarheimili aldraðra á Akranesi. Guðmundur P. Bjarnason lést í febrúarmánuði 2006 í hárri elli. Hann átti þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði sem netagerðarmaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður sinn. Guðmundur var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness árið 1933. 

Ljóst er að hlutfallslega færri nemendur sækja háskólanám í eðlisfræði og efnafræði á Íslandi en í samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guðmundar við háskólanemendur í eðlis- og efnafræði er því mikilvægt lóð á þá vogarskál að hvetja unga Íslendinga að sækja nám í þessum fögum.


Stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi skipa Guðmundur G. Haraldsson, prófessor í efnafræði, sem er formaður, Hafliði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og Eiríkur Dór Jónsson, fulltrúi Arion banka sem er vörsluaðili sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá.