Lagadeildir Háskólanna á Akureyri, á Bifröst, í Reykjavík og Háskóla Íslands stóðu nýverið sameiginlega að fjórum málþingum um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Tillögurnar gera ráð fyrir umfangsmiklum breytingum á núverandi stjórnarskrá. Málþingin voru tekin upp og eru nú aðgengileg á heimasíðu Lagadeildar Háskóla Íslands.
Hér getur að líta yfirlit yfir efni þeirra:
Háskólinn á Akureyri, föstudaginn 21. október. Tillögur stjórnlagaráðs um kosningafyrirkomulag og kjördæmaskipan. Frummælandi Ágúst Þór Árnason.
Háskóli Íslands, föstudaginn 4. nóvember. Hlutverk forseta Íslands í tillögum stjórnlagaráðs. Frummælandi Björg Thorarensen.
Háskólinn á Bifröst, föstudaginn 11. nóvember. Stendur ný stjórnarskrá vörð um lýðræðið? Frummælendur Bryndís Hlöðversdóttir og Jón Ólafsson.
Háskólinn í Reykjavík, föstudaginn 18. nóvember. Þróun mannréttinda í tillögum stjórnlagaráðs. Frummælandi Oddný Mjöll Arnardóttir.
Upptökurnar eru á vef Lagadeildar Háskóla Íslands
