Bandaríski hagfræðingurinn Robert Aliber hélt fyrirlestur um orsakir titrings á eigna- og gjaldeyrismörkuðum í Hátíðasal Háskólans í síðustu viku.
Fyrirlesturinn var gríðarlega vel sóttur og fjallaði Aliber um óstöðugleika á mörkuðum í Evrópu og í Bandaríkjunum í sögulegu samhengi. Hann velti upp þeirri spurningu að hversu miklu leyti sveiflur í gengi gjaldmiðla og sveiflur hlutabréfaverðs og fasteignaverðs megi rekja til alþjóðlegra þátta, annars vegar, og starfsemi innlendra fjárfestinga- og viðskiptabanka, hins vegar.
Myndbandið af fyrirlestrinum má nálgast á myndbandavef Háskólans.
Myndband af fyrirspurnum og umræðum má einnig nálgast á myndbandavef Háskólans.
