Upptaka af málþingi

Gæðanefnd og Kennslumálanefnd Háskóla Íslands ásamt vísindanefnd háskólaráðs stóðu fyrir málþingi um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum föstudaginn 27. janúar. Málþingið fór fram í Öskju og þar ræddu fjórir prófessorar af ólíkum fræðasviðum Háskóla Íslands um akademískt frelsi út frá mismunandi sjónarhornum.

Eftir að Jón Atli  Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor vísinda og kennslu, hafði sett málþingið tók Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki og formaður kennslumálanefndar, við og flutti erindið „Málfrelsi og sannleiksleit“ þar sem hann ræddi meðal annars hugtakið akademískt frelsi og skilgreiningu þess. Að erindi hans loknu tók Björg Thorarensen, prófessor í lögfræði, við og ræddi um akademískt frelsi út frá sjónarhóli laga og réttar í erindinu „Tjáningarfrelsi í kennslu og rannsóknum“.

Þá var komið að Þorbirni Broddasyni, prófessor í félagsfræði, sem  fjallaði m.a. um  akademískt frelsi, fjölmiðlafrelsi og þversögn tjáningarfrelsisins. Að lokum flutti Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði, erindi um akademískt frelsi í vísindarannsóknum. Að erindum lokum var boðið upp á pallborð frummælenda undir stjórn fundarstjóra.

Málþingið var tekið upp og hægt er að nálgast það á myndbandasíðu Kennslumiðstöðvar. Pallborðsumræður eftir erindin má nálgast í öðru myndbandi á sömu síðu.

deila á facebook