Bandaríski málvísindamaðurinn og samfélagsrýnirinn dr. Noam Chomsky heimsótti Háskóla Íslands í síðustu viku og hélt tvö erindi. Annars vegar var um að ræða öndvegisfyrirlestur Hugvísindasviðs á aldarafmæli Háskóla Íslands, þar sem Chomsky fjallaði um stöðu heimsmálanna, lýðræði og vald, og hins vegar erindi í námskeiði við Hugvísindasvið þar sem áhrif hugmynda hans á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum eru meginumfjöllunarefnið.
Í síðarnefnda fyrirlestrinum, sem Chomsky nefndi „The ´Generative Enterprise´: Its origins, goals, prospects“ fjallaði hann um stefnu sína í málvísindum sem nefnd hefur verið málkunnáttufræði en hún skaut honum upp á stjörnuhiminn málvísindanna á 6. áratug síðustu aldar. Eitt meginatriði stefnunnar er að öll tungumál séu sama eðlis, maðurinn hafi meðfæddan hæfileika til að tileinka sér þau og það greini hann frá dýrum. Allar götur síðan hefur Chomsky verið að þróa málvísindakenningu sína í fjölda greina og bóka.
Mikill áhugi var fyrir erindi Chomskys og gera má ráð fyrir að vel á þriðja hundrað manns hafi hlýtt á það. Erindið er nú aðgengilegt á upptöku en Pétur Fjeldsted Einarsson veg og vanda af henni.
