Dr. Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, flutti í gær, föstudaginn 28.október, erindi í Hátíðasal Háskóla Íslands í tilefni aldarafmælis skólans. Erindi þessa næstæðsta manns AGS var hluti af röð hátíðarfyrirlestra rektors á afmælisárinu og bar það yfirskriftina „Global Economic Challenges and Fostering Future Prosperity".
Dr. Shafik ræddi í erindi sínu um þær efnahagslegu áskoranir sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir og mikilvægi þess að bregðast skjótt við. Hún fór yfir hagvaxtarhorfur í heiminum á næsta ári og benti á að hagvöxtur yrði hægur í þróuðum efnhagsríkjum Vesturlanda og atvinnuleysi áfram töluvert en í hinum vaxandi efnahagsríkjum, eins og Kína, Indlandi og Brasilíu myndi hagvöxturinn verða allnokkur.
Þá benti dr. Shafik á að almenningur hefði áhyggjur af því að leiðtogar heims hefðu ekki næg tök á stöðunni til þess að bregðast við hinum mikla efnahagsvanda sem blasti við. Úr því þyrfti að bæta. Mikilvægt væri m.a. að öll lönd legðu fram trúverðugar áætlanir í ríkisfjármálum og þá þyrftu bankar að búa sig betur undir áföll framtíðarinnar. Í ýmsum þeim áskorunum sem þjóðir heims stæðu frammi fyrir hefði Ísland staðið sig vel á síðustu misserum.
Dr. Shafik hefur yfirgripsmikla menntun og reynslu af alþjóðavettvangi og varð m.a. yngsti aðstoðarframkvæmdarstjóri Alþjóðabankans frá upphafi. Hún hefur einbeitt sér að vaxandi mörkuðum, þróunarmálum og málefnum Mið-Austurlanda samfara því að hafa öðlast viðamikla reynslu af stefnumótun, stjórnun og fræðastörfum.
Erindi dr. Shafik í Háskóla Íslands var tekið upp og hægt er að nálgast það á afmælisvef Háskóla Íslands.
Myndir frá fyrirlestrinum má nálgast hér til hægri. Kristinn Ingvarsson tók þær.
