Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetur um smáríki fengu Jean Monnet styrk á síðasta ári til að standa fyrir upplýstri umræðu um Evrópusambandið á Íslandi með því að bjóða upp á opna fyrirlestra með erlendum fræðimönnum.
„Við hófum leik í haust og buðum upp á fyrirlestur í hádeginu hvern föstudag til loka annar og þráðurinn var svo tekinn upp aftur 20. janúar með erindi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um hvernig gallar regluverks Evrópusambandsins komu berlega í ljós við fall íslensku bankana haustið 2008. Allir fyrirlestrarnir hafa verið einstaklega vel sóttir og þá ekki síst af almenningi, erlendum diplómötum og fulltrúum fjölmiðla. Til að útiloka ekki áhugasama sem komast ekki á fundina hafa upptökur af fundunum verið settar á vefsíðuna okkar, www.hi.is/ams, samdægurs,“ segir Pia Elísabeth Hansson hjá Alþjóðamálastofnun og Rannsóknasetri um smáríki.
Ýmis umfjöllunarefni Evrópumála
„Margir áhugaverðir fyrirlestrar eru fram undan en í stuttu máli má benda á umfjöllunarefni sem spanna vítt svið, allt frá arabíska vorinu til áhrifa smáríkja innan Evrópusambandsins. Að auki vil ég vekja sérstaka athygli á næsta fundi, föstudaginn 27. janúar, en þá fjallar Simon J. Bulmer, prófessor í Evrópufræðum við Sheffield-háskóla, um stóru aðildarríkin innan ESB og Þýskaland sérstaklega,“ segir Pia. Hún tekur jafnframt fram að fundaröðin sé alfarið í höndum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki en að í nokkrum tilvikum njóti þau samstarfs við ýmsa aðila t.a.m. erlend sendiráð og aðrar stofnanir innan Háskóla Íslands.
Fundirnir fara fram í stofu 101 í Lögbergi alla föstudaga frá kl. 12 til 13 og eins og fyrr segir eru allir velkomnir.
Hér er hægt að skoða dagskrá fundaraðarinnar Evrópa - samræður við fræðimenn (.pdf).
