UNESCO vottar tungumálamiðstöð SVF

Alþjóðleg tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands hefur fengið samþykki Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, til að starfa undir formerkjum hennar. Í vottun UNESCO felst mikil viðurkenning á störfum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og stuðningur við framtíðaráform hennar. Efnt verður til samkeppni um hönnun byggingar fyrir tungumálamiðstöðina og aðra starfsemi stofnunarinnar og er stefnt að því að hún verði tekin í notkun árið 2014.

Undanfarin ár hefur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Vigdís sjálf unnið ötullega að því að  koma á fót alþjóðlegri tungumálamiðstöð hér á landi. Í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið og íslensku UNESCO-nefndina hefur verið kappkostað að væntanleg miðstöð hljóti viðurkenningu sem UNESCO-stofnun, skv. flokki II. Erindi mennta- og menningarmálaráðherra þess efnis var sent til UNESCO í byrjun árs og hlaut það jákvæða afgreiðslu í stjórn UNESCO sl. vor og var samþykkt samhljóða á allsherjarráðstefnu Menningarmálastofnunarinnar hinn 4. nóvember sl. 

Við afgreiðslu málsins var meðal annars litið til þess að Íslendingar gera sér almennt vel grein fyrir mikilvægi tungumálakunnáttu og menningarlegu gildi tungumála, að þýðingar á erlendum bókmenntum hafa lengi verið iðkaðar og auðgað bæði íslenska tungu og menningu þjóðarinnar, að íslensk tunga skipar veglegan sess í menningu Íslendinga og síðast en ekki síst að Vigdís Finnbogadóttir hefur vakið athygli víða um heim fyrir baráttu sína og merkt framlag í þágu tungumála og menningar mannkyns.

Alþjóðlegu tungumálamiðstöðinni er ætlað mikilvægt hlutverk og viðurkenning UNESCO því kærkomin. Standa vonir til að hún muni auðvelda stofnun Vigdísar að eflast enn frekar og rækja alþjóðlegt hlutverk sitt en það er öðru fremur að stuðla að fjöltyngi og skilningi á ólíkri menningu þjóða og varðveislu tungumála. Sérstök áhersla verður lögð á þýðingar og hlutverk þeirra fyrir menningu og tungu. Auk aðstöðu til kennslu, rannsókna og fræðastarfs verður komið á fót upplifunarsetri, þar sem leikir og lærðir geta fræðst um ólík tungumál og menningarheima á lifandi hátt. Enskt heiti miðstöðvarinnar verður Vigdís International Centre for Multilingualism and Intercultural Understanding.

Þetta er í annað sinn sem stofnun tengd Háskóla Íslands hlýtur viðurkenningu UNESCO en árið 2009 var Handritasafn Árna Magnússonar, sem varðveitt er hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og í Árnasafni í Kaupmannahöfn, sett á sérstaka varðveisluskrá UNESCO vegna mikilvægis handritanna fyrir menningararf mannkyns.

Framkvæmdir við tungumálamiðstöð hefjast árið 2013
Í tengslum við stórafmæli Vigdísar í apríl 2010 var efnt til fjáröflunarátaks til að hrinda áformum um alþjóðlegu tungumálamiðstöðina í framkvæmd. Fjöldi innlendra og erlenda stofnana, félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga lagði verkefninu lið og er fjármögnunin nú á lokastigi. Tungumálahúsið mun rísa við Suðurgötu næst gömlu Loftskeytastöðinni og hefur byggingarnefnd á vegum rektors þegar lokið tilskilinni undirbúningsvinnu. Efnt verður til opinnar samkeppni um hönnun hússins alveg á næstunni og er stefnt að því að úrslit verði gjörð kunn í apríl nk. Verklegar framkvæmdir hefjast á fyrri hluta árs 2013 og byggingin tekin í notkun á árinu 2014.

Fyrsti áfangi byggingarinnar verður 3.000 fermetrar að stærð auk bílageymslu og tengingar við Háskólatorg. Í deiliskipulagi er heimild fyrir allt að 7.200 fermetra byggingu á byggingarreitnum.

Hús Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur mun setja svip sinn á Reykjavíkurborg og háskólasvæðið. Alþjóðlega tungumálamiðstöðin verður opin gestum og gangandi en áhersla verður lögð á að glæða áhuga barna og unglinga á tungumálum og framandi menningarheimum. Byggingin mun stórbæta aðstöðu til rannsókna og kennslu í erlendum tungumálum auk aðstöðu fyrir alþjóðlegt samstarf. Þá mun viðurkenning UNESCO verða lyftistöng fyrir alla þá starfsemi sem fram fer í hinni nýju byggingu. Gera má ráð fyrir að með henni skapist tækifæri til nýsköpunar, ekki síst í tengslum við menningartengda ferðaþjónustu.

deila á facebook