Skip to main content
18. maí 2017

Um 400 rithöfundar væntanlegir

""

Um 400 rithöfundar munu sækja ráðstefnuna NonfictioNOW í Háskóla Íslands dagana 1.-4. júní. Meðal þeirra eru bandarísku rithöfundarnir Aisha Sabatini Sloan og Gretel Ehrlich, Norðmaðurinn Karl Ove Knausgaard sem sló í gegn með sjálfsævisögu sinni Min Kamp og Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og höfundur sjálfsævisögulegra bóka.

NonfictioNOW-ráðstefnan er helguð óskálduðu efni af öllum toga og var stofnuð í Bandaríkjunum árið 2005. Þetta er í fyrsta skipti sem hún er haldin í Evrópu. Hægt er að nálgast dagskrá ráðstefnunnar og skrá sig til þátttöku á vef ráðstefnunnar, nonfictionow.org. Hægt er að kaupa miða á fyrirlestra eftirfarandi höfunda í Hörpu á miðasöluvef Hörpu:

  • Bandaríski rithöfundurinn Gretel Ehrlich hefur gefið út 15 bækur og hefur unnið til verðlauna fyrir Solace Of Open Spaces, This Cold Heaven, Seven Seasons in Greenland og nú nýlega Facing the Wave.
  • Norðmaðurinn Karl Ove Knausgaard sló rækilega í gegn með sjálfsævisögu sinni í sex hlutum, Min Kamp. Sumir gagnrýnendur telja hann vera mesta rithöfund Norðmanna á eftir Henrik Ibsen.
  • Hin unga Aisha Sabatini Sloan, sem kemur frá Bandaríkjunum, hefur hlotið lof fyrir sjálfsævisögu sína The Fluency of Light: Coming of Age in a Theater of Black and White og þegar unnið til verðlauna fyrir væntanlegt ritgerðasafn.
  • Ljóðskáldið og rithöfundurinn Wayne Koestenbaum frá Bandaríkjunum hefur gefið út fjölda bóka og ljóðasafna, m.a. hina vinsælu The Queen’s Throat: Opera, Homosexuality, and the Mystery of Desire.

Ráðstefnan hefst í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 1. júní með svokölluðum húslestrum og í kjölfarið verður málstofa í Háskólabíói um Draumaland  Andra Snæs Magnasonar og sýning á myndinni sem byggir á samnefndri bók. Dagana 2. og 3. júní verða málstofur í Háskóla Íslands þar sem fjallað verður um sannsöguleg skrif í öllum sínum fjölbreytileika og 2. og 4. júní verður boðið upp á sérstaka fyrirlestra í Silfurbergi í Hörpu. Einnig verður boðið upp á höfundakvöld með innlendum og erlendum rithöfundum í Norræna húsinu, en meðal íslenskra þátttakenda eru Jón Gnarr, Elísabet Jökulsdóttir og Vilborg Davíðsdóttir. Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson slítur ráðstefnunni á eftir síðasta fyrirlestrinum í Hörpu 4. júní.

Um 400 rithöfundar munu sækja ráðstefnuna NonfictioNOW í Háskóla Íslands dagana 1.-4. júní.