Tveir harðir sigruðu í hönnunarkeppni

Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig í fyrra.

Alls voru tíu lið skráð til leiks og líkt og í fyrra var keppnin með útsláttarfyrirkomulagi þar sem tvö tæki áttust við í hverri viðureign. Keppnin fór þannig fram að tækin byrjuðu hvort á sínum enda brautarinnar og kepptust við að koma flaggi sínu á miðpunkt brautarinnar. Keppnin reyndi því bæði á nákvæmni og hraða.

Eftir harða keppni stóðu Tveir harðir eftir ásamt liðinu Tom Selleck sem skipað var þeim Andra Yngvasyni, nemanda í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands, og Adam Hart Rúnarssyni, BS í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Fór svo að lokum að Tveir harðir höfðu sigur með tæki sínu Invictus 2.0 og hlutu að launum 400  þúsund krónur frá Marel. Tveir harðir virðast kunna vel að meta hið nýja fyrirkomulag keppninnar því eins og fyrr segir höfðu þeir einnig sigur í fyrra.

Tom Selleck liðar fóru hins vegar ekki tómhentir heim því þeir fengu verðlaun fyrir bestu hönnunina. Þá fékk liðið Fedex einnig verðlaun fyrir frumlegustu hönnunina, en Fedex skipuðu Aðalsteinn Pálsson, nemandi í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Daníel Björn Sigurbjörnsson og Jökull Snæbjarnarson, nemar í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands.

Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að Hönnunarkeppninni og hefur hún alla jafna vakið mikla athygli, jafnt innan háskólasamfélagsins sem utan. Keppnin hefur jafnan verið sýnd á RÚV og hefur það aukið hróður hennar enn frekar.

Myndir frá keppninni má sjá hér til hliðar. Þær tók Eggert Jóhannesson.

deila á facebook